Fara í efni
Íþróttir

Þór og Fylkir mætast í undanúrslitum í dag

Þórsarar fagna sigri gegn Gróttu í riðli 2 í Lengjubikarnum. Mynd: Ármann Hinrik.

Nú líður að lokum A-deildar Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu. Öðrum undanúrslitaleiknum er lokið þar sem KR sigraði Stjörnuna, en hinn undanúrslitaleikurinn er á dagskrá á KA-svæðinu, Greifavellinum, í dag.

Þór vann riðil 2, hlaut tíu stig í fjórum leikjum, en liðið lék þó raunar fimm leiki því eftir fyrstu tvo leikina dró Völsungur lið sitt úr keppni. Þór gerði jafntefli við ÍA í fyrsta leik, en vann síðan Gróttu, Aftureldingu og Val og má segja að á ýmsu hafi gengið, en eins og fram hefur komið í fréttum mætti Valur ekki með sitt sterkasta lið norður í lokaleik riðilsins sem skar úr um það hvort félagið færi áfram í undanúrslit.

Lokin á riðli 4, þar sem Fylkir telst hafa orðið í efsta sætinu, voru skondin og bera nokkurt vitni um þá tilvistarkreppu sem Lengjubikarinn virðist kominn í þegar það gerist ítrekað undanfarin ár að lið hafa bókað sig í æfingaferðir til annarra landa og afsala sér réttinum til að fara áfram í undanúrslit.

Þegar þetta er skrifað hefur Fylkir lokið leikjum sínum í riðli 4 með 12 stig. Í öðru sæti er Þróttur með níu stig, en á tveimur leikjum ólokið. Frestanir á leikjum ÍBV settu strik í reikning þessa riðils. Þróttur á eftir að mæta ÍBV og gæti því náð Fylki að stigum og farið upp í efsta sætið með góðri markatölu.

  • Lengjubikar karla í knattspyrnu
    A-deild, undanúrslit
    Greifavöllurinn kl. 18
    Þór - Fylkir
  • Útsending: Livey.events
    Áskriftarrás eða stakir leikir