Fara í efni
Íþróttir

Tap gegn botnliðinu – Þór enn í fallhættu

Christian Caldwell skoraði 38 stig og tók 15 fráköst, Axel Arnarsson kom næstur í Þórsliðinu með 16 stig. Stigahæstur Fylkismanna var Maxwell Joseph Kunnert (3) með 35 stig. Myndirnar eru úr fyrri leik liðanna í vetur. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Karlalið Þórs í körfubolta tapaði fyrir botnliði 1. deidarinnar, Fylki, í næstsíðustu umferð deildarinnar í kvöld. Lokatölur urðu 113-110 Fylki í vil. Þórsarar þurfa sigur í lokaumferðinni á föstudag til að halda sæti sínu í deildinni, eða þá að treysta á að Hamar eða Fylkir tapi.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð sveiflukenndur, en jafnaðist út þegar honum lauk. Þórsarar höfðu yfirhöndina í fyrsta leikhluta, náðu 12 stiga forskoti og unnu hann með átta stiga mun. Heimamenn í Fylki unnu upp forskotið og náðu sjálfir átta stiga forystu þegar langt var liðið á fyrri hálfleikinn, en munurinn tvö stig þegar liðin gengu til búningsklefa.

Fylkismenn héldu svo áfram forystunni út þriðja leikhlutann og leiddu með 11 stigum áður en sá fjórði hófst. Síðasti fjórðungurinn var síðan nokkuð jafn til loka, Fylkismenn unnu hann með tveggja stiga mun og leikinn með 13 stiga mun.

Fylkir - Þór (26-34) (30-20) 56-54 (27-18) (30-28) 113-100

Christian Caldwell skoraði langflest stig Þórsara, 38, auk þess að taka 15 fráköst. Axel Arnarsson skoraði 16 stig. Hjá Fylki voru stigahæstir þeir Maxwell Joseph Kunnert með 35 stig og Finnur Tómasson með 32 stig.

Helstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Christian Caldwell 38/15/3 - 40 framlagspunktar
  • Axel Arnarsson 16/4/1
  • Páll Nóel Hjálmarsson 11/1/0
  • Eiríkur Frímann Jónsson 10/4/6
  • Týr Óskar Pratiksson 7/1/0
  • Smári Jónsson 5/1/4
  • Hákon Hilmir Arnarsson 4/0/1
  • Andri Már Jóhannesson 3/0/0
  • Paco Del Aquilla 3/8/1
  • Finnbogi Páll Benónýsson 3/2/2
  • Pétur Cariglia 0/0/1

Tölfræði leiksins

Staðan í deildinni

Spennandi lokaumferð á föstudag

Þór er áfram í 10. sæti deildarinnar með fjóra sigra, eins og Hamar. Þór vann báða leikina gegn Hamri og er því ofar á betri árangri í innbyrðis viðureignum þessara liða. Fylkir er áfram í neðsta sætinu þrátt fyrir sigurinn, en vantar aðeins einn sigur til að ná Þór og Hamri þegar einni umferð er ólokið. Það má því búast við nokkurri spennu í leikjum lokaumferðarinnar næsta föstudagskvöld. Þrjú neðstu liðin eiga öll útileik fyrir höndum.

Leikir neðstu liðanna í 22. umferð: 

  • Selfoss - Þór
  • Snæfell - Hamar
  • Breiðablik - Fylkir

Fylkir er með betri árangur í innbyrðis viðureignum við bæði Þór og Hamar og myndi því nægja að ná öðru þeirra eða báðum. Fylkir á þó erfiðasta leikinn eftir af þessum þremur liðum, gegn Breiðabliki sem er í 4. sæti deildarinnar. Þórsurum nægir að vinna Selfoss, eða þá að Hamar vinni ekki sinn leik eða að Fylkir tapi, en fari svo að bæði Hamar og Fylkir vinni, en Þór tapi í lokaumferðinni endar Þór í neðsta sætinu. Eitt lið fellur úr deildinni. 

Innbyrðis viðureignirnar:

  • Hamar - Þór 89-115
  • Þór - Hamar 77-72
    Þór með tvo sigra

  • Þór - Fylkir 96-86
  • Fylkir - Þór 113-100
    Fylkir með +3 stig

  • Fylkir - Hamar 98-108
  • Hamar - Fylkir 94-115
    Fylkir með +11 stig

Það er reyndar einnig spenna á toppnum fyrir lokaumferðina og hreinn úrslitaleikur á dagskrá á Hornafirði milli Sindra og Hattar um það hvort liðið endar í efsta sæti deildarinnar og fer beint upp í Bónusdeildina. Liðin í 2.-9. sætinu fara í umspil um hitt lausa sætið í úrvalsdeildinni og gæti því farið svo að bæði Egilsstaðir og Hornafjörður ættu lið í efstu deild á næsta ári, þó Akureyri sé nokkuð frá því að geta látið þann draum rætast að nýju. Þess má geta að með Sindra leika tveir fyrrum leikmenn Þórs, Jason Gigliotti og Srdjan Stojanovic.