Fara í efni
Íþróttir

Svekkjandi tap KA gegn Valsmönnum

Sigurmark Vals í kvöld; Albin Skoglund skorar úr markteignum eftir að boltinn fór í stöng marksins og hrökk til hans. Myndir: Ármann Hinrik

KA beið lægri hlut gegn Val þegar liðin áttust við í kvöld í efstu deild karla í knattspyrnu á gervigrasvelli KA – Greifavellinum sunnan við KA-heimilið. Gestirnir skoruðu eina mark leiksins en KA átti síst minna í leiknum og hefði verðskuldað stig.

Fyrir þennan leik hafði KA unnið 3 leiki í röð eftir rysjótta byrjun á Íslandsmótinu og liðið virðist vera slípast betur saman. Valsmenn hafa sömuleiðis verið að ná vopnum sínum og sigruðu m.a. Breiðablik í dramatískum leik í síðustu umferð.

Leikurinn í kvöld var frekar lokaður og lítið um færi. KA var lengst af meira með boltann, sérstaklega í fyrri hálfleik, en Valsarar voru vel skipulagðir og gáfu engan höggstað á sér. Sóknarleikur KA var frekar hugmyndasnauður og bitlaus og lítið gekk upp á síðasta vallarþriðjungi.

Sigurmarkið í leiknum kom á 41. mínútu þegar löng sending Harðar Inga Gunnarssonar frá hægri fór yfir varnarmenn KA og hafnaði hjá Tryggva Hrafni Haraldssyni vinstra megin í teignum. Hann sneri boltann laglega í boga yfir í fjærhornið en boltinn hafnaði í stönginni. Þaðan féll hann fyrir fæturna á Albin Skoglund á markteignum og hann rúllaði knettinum af mikilli yfirvegun í markhornið.

Í blálok fyrri hálfleiks kom besta færi KA þegar Danijel Dejan Djuric átti frábæra sendingu inn á Oliver Heiðarsson vinstra megin í teignum. Oliver lagði knöttinn yfir Frederik Schram sem kom út á móti en boltinn endaði í stönginni og Valsmenn náðu síðan að hreinsa.

Seinni hálfleikur var tíðindalítill, bæði lið áttu nokkur hálffæri en annars var stöðubaráttan í fyrirrúmi. Síðasti möguleiki KA til að jafna leikinn kom í lok uppbótartímans þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson skaut rétt framhjá úr aukaspyrnu utan teigs. Valsmenn fögnuðu seiglusigri en KA var hins vegar ekki lakara liðið í leiknum og hefði átt skilið stig.

Eftir þennan leik er KA enn í 6. sæti deildarinnar með 10 stig og næsti leikur liðsins er gegn KR á útivelli, sunnudaginn 31. maí.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Oliver Heiðarsson í besta færi KA í leiknum; hann sendi knöttinn framhjá Schram markverði en í stöngina og Valsmenn náðu að hreinsa. Myndir: Ármann Hinrik