Fara í efni
Íþróttir

„Strákarnir okkar“ vonsviknir í Kaíró

Arnór Þór Gunnarsson, fyrirliði Íslands, ræðir við kollega sinn í hægra horninu, Sigvalda Guðjónsson, að leik loknum. Ljósmynd: IHF.

Arnór Þór Gunnarsson, fyrirliði Íslands, lék allan fyrri hálfleikinn þegar landsliðið tapaði fyrir Portúgal, 25:23, í fyrsta leiknum á heimsmeistaramótinu í handbolta í Egyptlandi í gærkvöldi. Arnór gerði ekki mark í gær og hinn Akureyringurinn, Oddur Gretarsson sat á bekknum allan tímann.

Íslenska liðið hóf leikinn af miklum krafti og skoraði fyrstu tvö mörkin en jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Þegar liðin fengu til búningsklefa var staðan 11:11 Portúgal í hag. Segja má að allt hafi farið í baklás hjá Íslendingum fyrri hluta síðari hálfleiks, Portúgalar gengu á lagið og náðu mest fimm marka forystu.„Strákarnir okkar“ – eins og landsliðið er gjarnan kallað, að minnsta kosti þegar vel gengur – gáfu ekki upp en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Markaskorar Íslands: Bjarki Már Elísson 6 , Sigvaldi Björn Guðjónsson 4, Elvar Örn Jónsson 3, Alexander Petersson 2, Gísli Þorgeir Kristjánsson 2, Ómar Ingi Magnússon 2, Ólafur Andrés Guðmundsson 2, Ýmir Örn Gíslason 1 og Arnar Freyr Arnarsson 1.

Ágúst Elí Björgvinsson varði 7 skot og Viktor Gísli Hallgrímsson varði 4 skot.

Ísland mætir Alsír næst, á laugardaginn klukkan 19.30 og verður leikurinn beinni útsendingu á RÚV að vanda.

Umfjöllun Ívars Benediktssonar um HM á handbolti.is