Fara í efni
Íþróttir

Spenna í lokaumferð 1. deildar karla

Augun á boltanum! Skemmtileg mynd úr fyrri viðureign liðanna. Christian Caldwell, Kristijan Vladovic, Ari Hrannar Bjarnason, Colin Pryor og Paco Del Aquilla horfa á lausan bolta. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Lokaumferð 1. deildar karla í körfubolta er á dagskrá kvöldsins. Þórsarar sækja lið Selfyssinga heim. Þrjú lið berjast við að forðast fall úr deildinni, Þór, Hamar og Fylkir.

Þór er enn í 10. sæti deildarinnar með fjóra sigra, eins og Hamar. Þór vann báða leikina gegn Hamri og er því ofar á betri árangri í innbyrðis viðureignum þessara liða. Fylkir er áfram í neðsta sætinu þrátt fyrir sigurinn gegn Þór á sunnudag, en vantar aðeins einn sigur til að ná Þór og Hamri þegar einni umferð er ólokið. Það má því búast við nokkurri spennu í leikjum lokaumferðarinnar í kvöld. Þrjú neðstu liðin eiga öll útileik fyrir höndum, Þór gegn Selfossi, Hamar gegn Snæfelli í Stykkishólmi og Fylkir gegn Breiðabliki í Kópavogi.

  • 1. deild karla í körfubolta
    Vallaskóli á Selfossi kl. 19.15
    Selfoss - Þór
  • Útsending: SÝN KKÍ TV1
    Áskriftarsjónvarp

Þór tapaði fyrri viðureigninni við Selfyssinga í vetur með sex stiga mun, 75-81.

Innbyrðis viðureignir þriggja neðstu liðanna

  • Hamar - Þór 89-115
  • Þór - Hamar 77-72
    Þór með tvo sigra

  • Þór - Fylkir 96-86
  • Fylkir - Þór 113-100
    Fylkir með +3 stig

  • Fylkir - Hamar 98-108
  • Hamar - Fylkir 94-115
    Fylkir með +11 stig

Fylkir er með betri árangur í innbyrðis viðureignum við bæði Þór og Hamar og myndi því nægja að ná öðru þeirra eða báðum. Fylkir á þó erfiðasta leikinn eftir af þessum þremur liðum, gegn Breiðabliki sem er í 4. sæti deildarinnar. Þórsurum nægir að vinna Selfoss, eða þá að Hamar og/eða Fylkir tapi. Fari svo að bæði Hamar og Fylkir vinni, en Þór tapi í lokaumferðinni endar Þór í neðsta sætinu. Eitt lið fellur úr deildinni.