Fara í efni
Íþróttir

Aron fyrirliði í 13% landsleikja Íslands

Aron Einar í 113. og síðasta landsleiknum, gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli á mánudaginn. Hann bar fyrirliðabandið síðustu mínúturnar en telst þó ekki fyrirliði í þessum söguleika leik. Mynd: Skapti Hallgrímsson

EM 2016 og HM 2018 Fyrsti leikur Íslands á EM í Frakklandi var gegn Portúgal í Saint-Etienne og fyrsti leikur á HM í Rússlandi gegn Argentínu. Báðum leik 1:1 og hér er Aron með „starfsbræðrum“ sínum í þeim sögulegu leikjum, tveimur af bestu fótboltamönnum sögunnar, fyrirliðunum Cristiano Ronaldo og Lionel Messi. Myndir: Skapti Hallgrímsson

 
Viðureign Íslands og Lúxemborgar á Laugardalsvelli á mánudaginn var 113. landsleikur Arons og þar með jafnaði hann leikjamet annars Akureyrings, Birkis Bjarnasonar eins og áður hefur komið fram. Birkir lék 113. og síðasta leikinn með landsliðinu árið 2022 og þeir Aron voru vitaskuld samherjar þar í mörg ár, m.a. á eftirminnilegum stórum, Evrópumótinu í Frakklandi 2016, þar sem Birkir gerði einmitt fyrsta mark Íslands, og á heimsmeistaramótinu í Rússlandi 2018.
 
  • Aron Einar var fyrst fyrirliði Íslands 27. maí árið 2012, í vináttuleik gegn Frökkum sem fram fór á Stade du Hainaut í borginni Valenciennes.  Íslendingar komust í 2:0 með mörkum Birkis Bjarnasonar og Kolbeins Sigþórssonar en töpuðu 3:2.
  • Þetta var þriðji leikur Íslands undir stjórn sænska þjálfarans Lars Lagerbäck og sá fyrsti þar sem Aron var í byrjunarliðinu eftir að Lars tók við. Hann kom inn á af varamannabekknum í leiknum á undan, gegn Svartfjallalandi í Podgorica í lok febrúar.
  • Sölvi Geir Ottesen, núverandi þjálfari Víkings, var fyrirliði gegn Svartfjallalandi en ekki með gegn Frökkum vegna meiðsla.
  • Aron Einar var 23 ára þegar hann var fyrirliði gegn Frökkum leikjahæstur íslensku strákanna. Þetta var 27. landsleikur hans.
  • Sölvi Geir var einnig meiddur í næsta leik, vináttuleik gegn Svíþjóð. Aron Einar var aftur fyrirliði þá og var svo formlega skipaður fyrirliði um sumarið áður en undankeppni heimsmeistaramótsins hófst, að því er Víðir Sigurðsson segir í Íslenskri knattspyrnu það ár.
  • Aron Einar var fyrirliði landsliðsins í síðasta skipti 31. mars á þessu ári, í vináttuleik (1:1) gegn Haiti sem fram fór á BMO vellinum í kanadísku borginni Toronto.