Fara í efni
Íþróttir

Fjórir heimaleikir fram undan í vikunni

Tvö körfuboltalið og eitt íshokkílið eiga fram undan tveggja leikja viku, tvö þessara þriggja reyndar tveggja leikja helgi. Karlalið Þórs í körfubolta á heimaleiki í kvöld, mánudag, og aftur á föstudag. Kvennalið Þórs í körfunni tekur tveggja leikja helgi fyrir sunnan og það sama gerir kvennalið SA í íshokkí. Karlaliðin í handboltanum eiga svo bæði heimaleik sama kvöldið og næstum á sama tíma.

  • Körfubolti: Karlalið Þórs í körfubolta tekur á móti einu af efstu liðum næstefstu deildar, Bæjarins beztu deildinni, í kvöld, mánudagskvöld. Skagamenn koma þá í heimsókn í Höllina, en þeir sitja í 3. sæti deildarinnar að loknum sjö leikjum, hafa unnið sex leiki af sjö. Skagamenn geta jafnað topplið Þórs Þ. og Hauka með sigri á Akureyri í kvöld, en þessi þrjú lið hafa öll tapað aðeins einum leik. Þórsarar sitja hins vegar í 10. sætinu með tvo sigra í fyrstu sjö leikjum sínum. Þórsliðið á svo leik strax aftur á föstudagskvöld, annan heimaleik, þegar Selfyssingar koma norður. Selfyssingar eru í 4. sæti deildarinnar með fimm sigra í fyrstu átta leikjum sínum. Vikan fram undan verður því erfið hjá Þórsliðinu sem þarf sárlega á sigrum að halda til að færa sig ofar í töfluna og fjarlægjast fallsvæðið.
  • Handbolti: Það verður handboltaveisla á Akureyri á fimmtudag, en því miður fyrir almennt handboltaáhugafólk er aðeins hægt að bíta í aðra kökuna í þeirri veislu, eða svo gott sem, því bæði karlalið Akureyrar í efstu deild Íslandsmótsins, Olísdeildinni, eiga heimaleik næstum á sama tíma. KA tekur á móti HK í KA-heimilinu og hefst sá leikur reyndar hálftíma á undan leik Þórs og Fram sem fram fer í Íþróttahöllinni. Akureyrarliðin auðvitað að koma úr bæjarslagnum sem fram fór í Höllinni í gær. KA er í 3. sæti deildarinnar með 16 stig úr 11 leikjum, en Þór er í 10. sætinu með sex stig. HK er í sætinu fyrir neðan Þór, einnig með sex stig og á inni leik gegn Val.
  • Íshokkí: Kvennalið Skautafélags Akureyrar á annasama helgi fram undan, en liðið fer suður og mætir liði Fjölnis í Egilshöllinni bæði á föstudagskvöld og síðdegis á laugardag. Tveggja leikja helgi í höfuðborginni hjá toppliði SA. Akureyringum hefur gengið vel það sem af er tímabilinu og er SA í toppsæti Toppdeildarinnar með 15 stig að loknum sex leikjum. SR hefur fimm stig að loknum sex leikjum og Fjölnir fjögur stig úr fjórum leikjum. Lið SA hefur aðeins tapað einum leik, eftir framlengingu, unnið hina fimm, þar af einn eftir framlengingu.
  • Körfubolti: Komandi vika og helgin verða alls herjar tveggja leikja tarnir því kvennalið Þórs í körfuboltanum fer suður og leikur bæði á laugardag og sunnudag. Þór sækir U-lið Hauka heim í Hafnarfjörðinn á laugardag og svo Breiðablik í Kópavoginn á sunnudag. Eftir sigur á Selfyssingum í sjöundu umferðinni fór Þórsliðið upp að hinu Þórsliðinu, úr Þorlákshöfn, á toppi deildarinnar. Bæði liðin hafa unnið sex leiki af fyrstu sjö. 

MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER - körfubolti

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild karla, 9. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - ÍA

FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER - handbolti

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 12. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19
    Þór - Fram

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 12. umferð
    KA-heimilið kl. 19:30
    KA - HK

FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER - körfubolti

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild karla, 10. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Selfoss

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautasvellið í Egilshöll kl. 19:45
    Fjölnir - SA

LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER - körfubolti

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild kvenna, 8. umferð
    Ásvellir í Hafnarfirði kl. 13
    Haukar u - Þór

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna í íshokkí
    Skautasvellið í Egilshöll kl. 16:45
    Fjölnir - SA

SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER - körfubolti

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild kvenna, 9. umferð
    Smárinn í Kópavogi kl. 16:30
    Breiðablik - Þór

Stöður í deildum og leikjadagskrár

Blak

Handbolti

Íshokkí

Körfubolti


Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.