Fara í efni
Íþróttir

Sérfræðingar fjölmiðla spá KA í neðri hluta

Þrír sem fóru frá KA fyrir leiktíðina. Frá vinstri: Ingimar Torbjörnsson Stöle, Marcel Römer og fyrirliðinn, Ívar Örn Árnason. Myndir: Ármann Hinrik og Skapti Hallgrimsson

KA hefur leikið samfleytt frá árinu 2017 í efstu deild karla í knattspyrnu. Besti árangur liðsins síðan þá er 3. sætið árið 2022 en síðan þá hefur liðið endað í 7. sæti ár hvert. Líklegt má telja að KA-menn séu komnir með nóg af því ágæta sæti og finnist tími til kominn að enda ofar í töflunni en helstu spámenn fjölmiðlanna eru ekki bjartsýnir á að það takist. 

Þegar gluggað er í spádóma fotbolti.net og 433.is, sem sérhæfa sig í umfjöllun um knattspyrnu, kemur í ljós að sérfræðingar þeirra telja að KA muni enn og aftur hafna í 7. sæti deildarinnar. Spámenn hjá visir.is eru dálítið svartsýnni og telja að 9. sæti deildarinnar verði hlutskipti KA að þessu sinni. Hjá Morgunblaðinu og mbl.is eru spámennirnir á svipuðum slóðum og telja að KA verði í 8. sæti þegar upp verður staðið í haust.

Vörnin spurningarmerki en framlínan spennandi

Meginástæða þess að umræddir sérfræðingar eru ekki bjartsýnir á að KA vegni betur í sumar en undanfarin ár er óvissa með hvernig varnarleikurinn muni verða. Ívar Örn Árnason hefur verið leiðtoginn í vörninni undanfarin ár og myndað frábært miðvarðapar með Hans Viktor Guðmundssyni. Ívar Örn er nú kominn í herbúðir Breiðabliks og sérfræðingarnir telja að skarð hans hafi ekki verið fyllt. Þar að auki sleit bakvörðurinn Hrannar Már Steingrímsson hásin fyrir stuttu og verður ekkert með í sumar, þannig að skörðin í hópi varnarmanna eru stór. Einnig hefur liðið misst trausta leikmenn á borð við Bjarna Aðalsteinsson, Ingimar Torbjörnsson Stöle og Marcel Römer. Þar að auki verður Birnir Snær Ingason ekki áfram í herbúðum KA en koma hans seinni hluta Íslandsmótsins í fyrra breytti geysilega miklu fyrir liðið.

Hins vegar eru spámennirnir spenntir fyrir KA-liðinu framar á vellinum og koma Danijels Dejan Djuric gæti verið púslið sem gæti komið KA upp á næsta stig. Diego Montiel, sem kom frá Vestra, er skapandi miðjumaður og í þeir tveir með Hallgrími Mar Steingrímssyni og Jóan Símun Edmundsson geta gert hvaða liði sem er skráveifu. Að fá Svein Margeir Hauksson aftur er þýðingarmikið og einnig er líklegt að ungir leikmenn sem hafa fengið nokkur tækifæri síðustu ár fái enn stærra hlutverk núna í sumar. Ef tekst að hrista blönduna rétt saman er líklegt að KA-liðið muni gefa spámönnum og sérfræðingum langt nef.