Fara í efni
Íþróttir

Óskar og Kedza unnu silfur á Íslandsmótinu

Þórsararnir Óskar Jónasson, lengst til vinstri, og Edgars Kede Kedza með silfurverðlaunin í tvímenningi, ásamt Íslandsmeisturunum Helga Pjetri og Haraldi Birgissyni.

Óskar Jónasson og Edgars Kede Kedza frá píludeild Þórs unnu til silfurverðlauna á Íslandsmótinu í tvímenningi í krikket, einni grein pílukastsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs í dag.

Óskar komst einnig í undanúrslit í keppni í einmenningi. Mótið fór fram í aðstöðu píludeildar Þórs í gamla íþróttahúsinu við Laugargötu á laugardag og sunnudag.

„Óskar Jónasson og Edgars Kede Kedza náðu lengst Þórsara í tvímenningnum. Þeir komust í úrslitaleikinn, en töpuðu þar 6-0. Þeir Óskar og Edgars höfðu unnið Jason Wright og Axel James í 16 liða úrslitum (4-0), Lukasz Knapik og Henrik Huga Helgason í átta liða úrslitum (4-2) og Hólmar Árnason og Arngrím Anton Ólafsson í undanúrslitunum (5-2). Davíð Örn Oddsson og Viðar Valdimarsson komust í átta liða úrslitin, en töpuðu þar fyrir verðandi meisturum, Haraldi Birgissyni og Helga Pjetri (4-0),“ segir á heimasíðu Þórs.

„Aðrir keppendur frá píludeild Þórs sem komust upp úr riðlunum og í 16 liða úrslit, en máttu játa sig sigraða þar voru Geisli Hreinsson og Sigurbjörn Arnar Sigurgeirsson, Ingi Þór Stefánsson og Ágúst Örn Vilbergsson, Friðrik Gunnarsson og Jón Svavar Árnason, og Jason Wright og Axel James Wright.

Dóra Óskarsdóttir og Kolbrún Gígja Einarsdóttir fóru í undanúrslit í tvímenningnum, en biðu þar lægri hlut, 2-5, gegn Brynju Herborgu og Söru Heimisdóttur.

Óskar komst í undanúrslit í einmenningi

Óskar Jónasson var sá Þórsari sem náði lengst á mótinu, en auk silfurverðlaunanna í tvímenningi komst hann í undanúrslit í einmenningi í gær. Þar beið hann ósigur gegn Lukasz Knapik, 2-5. Óskar hafði unnið Alexander Baldvin Sigurðsson í 32ja manna úrslitum (4-1), Sigurjón Hauksson í 16 manna (4-0), Árna Ágúst Daníelsson í átta manna úrslitum (4-3), en var svo sleginn út í undanúrslitunum.

Af öðrum Þórsurum er það helst að segja að Viðar Valdimarsson og Jason Wright komust í átta manna úrslit, Edgars Kede Kedza og Sigurður Brynjar Þórisson komust í 16 manna úrslit og þeir Guðmundur Óli Steingrímsson, Davíð Örn Oddsson og Markús Darri Jónasson komust í 32ja manna úrslit.

Kolbrún Gígja Einarsdóttir komst upp úr riðlinum og í átta manna úrslit í einmenningi, en tapaði þar fyrir Kittu Einarsdóttur, 2-4.“

Nánar hér á heimasíðu Þórs