Fara í efni
Íþróttir

Öruggur sigur Þórs á HK í skemmtilegum leik

Hákon Ingi Halldórsson, sem fagnar hér einu marka sinna í gær, átti sannkallaðan stórleik; gerði 10 mörk úr 12 skotum. Gríðarlega skemmtilegur hornamaður. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar fögnuðu sigri í fyrsta heimaleiknum í Olís deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, þegar lið HK úr Kópavogi kom í heimsókn í gærkvöldi. Þór hafði tveggja marka forskot í hálfleik, 17:15, og munurinn var fimm mörk þegar upp var staðið; lokatölur 36:31.

Sigur Þórsara var mjög sanngjarn. Þeir tóku forystu strax í upphafi og héldu henni út leikinn; nokkrum sinnum virtust þeir ætla að stinga gestina hressilega af með mjög góðum leikköflum en mistök inn á milli urðu þess valdandi að það tókst ekki. Sigurinn var þó aldrei í hættu og þegar á heildina er litið lék Þórsliðið að mörgu leyti mjög vel.

Daninn Bertram Simonsen (3) er feykilega góður leikstjórnandi. Það mætti kalla veislu fyrir leikmenn eins og Þórð Tandra Ásgeirsson, sem þarna er í baráttu á línunni, að spila með Dananum.

Þórsliðið er mikið breytt frá síðasta vetri og óhætt að fullyrða að breiddin í leikmannahópnum er miklu meiri en áður. Fleiri og mun fjölbreyttri búnaður í vopnabúrinu.

„Gömlu, góðu“ máttarstólparnir eru enn á sínum stað – Brynjar Hólm Grétarsson, Þórður Tandri Ágústsson, Hafþór Vignisson og Oddur Gretarson, allt uppaldir Þórsarar sem höfðu verið fjarri heimaslóð mislengi þar til fyrir nokkrum misserum, og markvörðurinn góði Nikola Radovanovic sem kom til félagsins fyrir síðustu leiktíð. Mjög spennandi liðsauki er síðan kominn frá Danmörku, fjórir strákar sem leika reyndar misstór hlutverk enn sem komið er, en þrír voru mjög áberandi í gær og einn hreinlega frábær.

Leikstjórnandinn Bertram Simonsen er geysilega skemmtilegur leikmaður; fín skytta, öflugur í vörn og hefur mjög gott auga fyrir því að mata samherja sína. Gaman verður að fylgjast með honum í vetur, og ekki síður örvhentu skyttunni Mikkel Bak Scheumann Jensen sem gerði sjö mörk í gær og var mjög öflugur eftir að hann fór í gang. Þá kom landi þeirra, William Skovager, einnig vel við sögu. 

Rautt spjald – bless! Brynjar Hólm rekinn í sturtu þegar aðeins liðlega 10 mínútur voru búnar af leiknum. Dómarinn lék fyrir Brynjar hvers vegna rauða spjaldið fór á loft, gerði það vissulega vel en ákvörðunin var hins vegar afar umdeild, svo ekki sé meira sagt.

Þórsarar urðu fyrir því áfalli þegar aðeins 10 mínútur voru liðnar að Brynjari Hólm Grétarssyni var sýnt rauða spjaldið og var þar með útilokaður frá frekari þátttöku í leiknum. Hann hefur verið eitt mikilvægasta púslið í liðinu undanfarin ár, bæði í sókn og vörn, og ekki víst að liðið hefði þolað slíkt mótlæti á síðustu leiktíð. Nú er breiddin hins vegar orðin meiri eins og áður sagði; þótt rauða spjaldið hafi verið súrt, vegna þess að dómurinn var mjög strangur, svo ekki sé meira sagt, var það lærdómsríkt að sjá hve vel liðið gat leikið án Brynjars. 

Framundan er spennandi leiktíð hjá Þórsurum; einhvern tíma verður talað um „danska daga“ ef að líkum lætur! Tveir leikir eru að baki, tap fyrir Fram í Reykavík og sigur á HK, en fyrsta stóra prófið verður á miðvikudaginn í næstu viku þegar fyrsta „bæjarhátíð“ vetrarins fer fram; þegar KA og Þór mætast í KA-heimilinu. Enginn vafi er á að margir bíða spenntir. Og kannski má segja að Danirnir í Þórsliðinu verði þá formlega boðnir velkomnir til bæjarins!

Mörk Þórs: Hákon Ingi Halldórsson 10 (þar af 3 víti), Mikkel Bak Scheumann Jensen 7, Bertram Simonsen 4, William Skovager 4, Oddur Gretarsson 4, Þórður Tandri Ágústsson 3, Hafþór Már Vignisson 3, Jóhann Geir Sævarsson 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 15 (33%), Tristan Ylur Guðjónsson 0 (kom einu sinni inná og freistaði þess að verja eitt víti).

Mörk HK: Andri Þór Helgason 9 (þar af 6 víti), Örn Alexandersson 6, Kári Tómas Hauksson 6, Alex Máni Oddnýjarson 3, Gunnar Dan Hlynsson 3, Trúgvi Hávardsson 2, Tómas Bragi Lorriaux Starrason 1, Aron Dagur Pálsson 1.

Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 10 (22%), Patrekur Guðni Þorbergsson 1 (50%)