Mikilvægir leikir hjá Akureyrarliðunum
Upp er runnin mikilvæg vika hjá karlaliðum Akureyrar í handboltanum. Bæði eiga þau leik í kvöld, mánudagskvöld, og mætast svo í lokaumferðinni á fimmtudagskvöld í Höllinni. KA fær FH í heimsókn í kvöld og Þór sækir Aftureldingu heim í Mosfellsbæ.
KA er í hörkubaráttu rétt neðan við toppliðin, situr í 4. sætinu með 26 stig, en Haukar þar fyrir ofan með 28 stig og FH með 29. Fast á hæla KA koma ÍBV og Afturelding með 25 stig og svo Fram með 24. Hvert stig er því dýrmætt í lokaumferðunum tveimur.
- Olísdeild karla í handknattleik, 21. umferð
KA-heimilið kl. 19:30
KA - FH - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
Fyrri leikur þessara liða í vetur fór ekki vel fyrir KA; FH sigraði með 13 marka mun í Kaplakrika, 45:32.
_ _ _
Þórsarar eru í harðri baráttu á hinum enda töflurnar; þeir eiga enn tölfræðilega möguleika á áttunda sætinu, sem veitir þátttökurétt í úrslitakeppninni, en baráttan stendur líka um að forðast tvö neðstu sæti deildarinnar, fallsæti og umspilssæti.
Þegar tveimur umferðum er ólokið er HK í 8. sæti með 14 stig, Þór í 9. sæti með 11 stig, eins og Selfoss sem telst í 10. sætinu og Stjarnan er í 11. sætinu með 10 stig. ÍR er á botninum með 7 stig.
- Olísdeild karla í handknattleik, 21. umferð
Íþróttamiðstöðin að Varmá kl. 19:30
Afturelding - Þór - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
Fyrri viðureign Þórs og Aftureldingar í vetur var hörkuleikur þar sem liðin skildu jöfn í Höllinni á Akureyri, 23:23, í nóvember.
Vert er að nefna að tvö neðstu lið deildarinnar mætast í kvöld. ÍR fær Stjörnuna í heimsókn og ÍR-ingar verða að vinna til að halda í vonina um áframhaldandi veru í deildinni.