Fara í efni
Íþróttir

Mark snemma, mikil barátta og þrjú stig

Hildur Anna Birgisdóttir og Margrét Árnadóttir hoppandi kátar eftir markið sem tryggði Þór/KA sigur og þrjú stig. Margrét skoraði eftir sendingu Hildar Önnu þegar tæpar þrjár mínútur voru liðnar af leiknum. Myndir: Ármann Hinrik

Þór/KA vann gríðarlega mikilvægan sigur í kvöld þegar sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur kom í heimsókn í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Margrét Árnadóttir skoraði strax á þriðju mínútu og það reyndist eina mark leiksins; þrjú stig bættust í sarpinn og Þór/KA hefur nú níu stig að loknum 10 leikjum, jafn mörg og Valur sem á leik til góða við Stjörnuna á morgun.

Hagur Þórs/KA hefur vænkast undanfarið. Liðið byrjaði afar illa, fékk aðeins tvö stig úr fyrstu sjö leikjunum, en hefur nú fengið sjö stig úr þremur leikjum og það án þess að fá á sig mark.


Markið sem tryggði þrjú stig

Óhætt er að segja að Þór/KA hafi byrjað af krafti í kvöld. Aukaspyrna var dæmd þegar brotið var á framherjanum Erin Flurey úti á hægri kanti og Hildur Anna Birgisdóttir sá um að spyrna boltanum inn í vítateig gestanna. Margrét Árnadóttir hafði betur í baráttu um boltann við varnarmann og skoraði með þrumuskoti rétt utan markteigs. Ekki voru liðnar nema 2 mínútur og 40 sekúndur þegar boltinn söng í netinu.


Kraftur var í leikmönnum Þórs/KA í kvöld enda mikið í húfi. Sá kraftur nýttist að vísu ekki mikið í grimmar sóknaraðgerðir en liðið varðist vel og þegar upp er staðið eftir bardaga sem þennan er óþarft að spyrja um aðra tölfræði en þá að telja mörkin.

Staða liðsins er og var þannig að öllu skiptir að ná í stig, ekki hvernig farið er að því. Gestirnir voru meira með boltann í kvöld en ógnuðu marki Þórs/KA aldrei þannig að stórhætta skapaðist. Grimmir varnarmenn náðu oftast að komast í veg fyrir skot gestanna eða þá þeir hittu ekki markið.

Önnur úrslit kvöldsins voru afar áhugaverð svo ekki sé meira sagt; botnlið Fram sigraði topplið Breiðabliks 3:2 á heimavelli sem varð til þess að FH-ingar skutust upp í efsta sæti eftir 7:3 sigur á Þrótturum þar sem Ída Marín Hermannsdóttir gerði fimm af mörkum FH. Þróttarar komust í 2:0 þegar 20 mín. voru búnar en Ída Marín gerði næstu fimm mörk!

Fram er neðst sem fyrr, er nú með sjö stig úr 10 leikjum, Þór/KA og Valur hafa 9 stig, Víkingur 10 og Grindavík/Njarðvík 12.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni

Leikmaður gestaliðsins lætur vaða að marki í kvöld en Amalía Árnadóttir, fyrir miðri mynd, komst fyrir skotið þannig að engin hætta skapaðist.