KA hefur oftast mætt Víkingi í deildakeppni
Víkingur úr Reykjavík er það félag sem langoftast var andstæðingur KA í fyrstu 1.000 leikjum Akureyrarfélagsins í deildakeppni Íslandsmóts karla í fótbolta en KA og Víkingur mættust í 71 leik í tveimur efstu deildunum frá 1929 til 2025. KA lék sinn þúsundasta leik 1. júní 2025, gegn Stjörnunni, eins og fjallað var um í fyrri grein.
Næst komu Þór og Fram sem höfðu mætt KA 49 sinnum í deildaleik. Fimmtugasti leikurinn gegn Þór var því á Þórsvellinum í vor þar sem KA vann 1-0 með marki Hallgríms Mars Steingrímssonar, og sá 50. gegn Fram var einnig sigurleikur, 2-0 á KA-vellinum 24. ágúst 2025.
KA mætti FH 48 sinnum, ÍA og Val 47 sinnum og KR 46 sinnum í þessum fyrstu 1.000 leikjum. KA hefur mætt 52 mismunandi félögum/liðum í deildakeppninni og heildaryfirlit yfir andstæðingana í fyrstu 1.000 leikjunum má sjá hér fyrir neðan. Leikjafjöldinn fremst og svo árin sem KA hefur mætt viðkomandi félagi.

50 leikir – KA hefur mætt Þór og Fram næst oftast í deildakeppninni, leikirnir við hvort lið eru orðnir 50. Hér er langleikjahæsti Þórsarinn Ármann Pétur Ævarsson og Srdjan Tufegdzic, Túfa, sem lék með KA í nokkur ár og þjálfaði einnig liðið um tíma. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mótherjar KA í leikjafjölda, eftir þúsundasta leikinn í 10. umferð árið 2025:
3 Afturelding – 2009-25
2 Austri – 1980
6 Ármann – 1976-77-80
2 BÍ – 1993
10 BÍ/Bolungarvík – 2011-12-13-14-15
40 Breiðablik – 1978-81-82-84-85-91-92-93-97-98-05-17-18-19-20-21-22-23-24-25
8 Dalvík – 1997-99-00-01
2 Efling – 1975
5 Einherji – 1975-83-86
48 FH – 1978-81-83-87-89-90-91-92-96-97-98-99-00-02-03-04-17-18-19-20*-21-22-23-24-25
12 Fjarðabyggð – 2007-08-09-10-15-16
20 Fjölnir – 2005-06-07-10-11-12-13-17-18-20
49 Fram – 1932-41-78-79-81-82-83-84-87-88-89-90-91-92-96-02-03-04-06-15-16-22-23-24-25
40 Fylkir – 1975-80-83-85-89-94-95-97-98-99-02-03-04-18-19-20-21-23-24
26 Grindavík – 1993-94-02-03-04-07-13-14-15-16-17-18-19

1978 – KA og Víkingur mættust í fyrsta skipti í deildakeppninni, eftir að KA hóf að leika undir eigin merki á ný, á Akureyrarvelli mánudagskvöldið 26. júní 1978, fyrsta sumarið sem KA lék í efstu deild. KA-maðurinn Ármann Sverrisson, þriðji frá vinstri, skallar þarna boltann í Víkingsmarkið í þessum leik eftir hornspyrnu Sigbjörns Gunnarssonar. Víkingar komust í 3:0 en en Ármann minnkar þarna muninn í 3:1. Leikurinn endaði 5:2 fyrir gestina. Mynd úr safni Íslendings.
8 Grótta – 2010-11-15-20
28 Haukar – 1976-77-79-80-05-06-08-09-11-12-13-14-15-16
33 HK – 1994-95-98-05-06-09-10-11-14-15-16-19-20*-21-23-24
2 Huginn – 2016
2 Höttur – 2012
47 ÍA – 1978-79-81-82-84-87-88-89-90-92-02-03-04-09-10-11-14-17-19-20-21-22-24-25
13 ÍBÍ – 1975-76-77-80-82-85-86
40 ÍBV – 1976-78-79-81-82-85-90-91-92-02-03-04-07-08-17-18-19-22-23-25
24 ÍR – 1993-94-95-96-97-99-00-01-09-10-11-12
29 Keflavík – 1978-79-82-84-87-88-89-02-04-16-18-21-22-23
2 KF – 2013
46 KR – 1932-41-79-81-82-84-87-88-89-90-91-92-02-03-04-17-18-19-20*-21-22-23-24-25
12 KS – 1975-83-85-86-01-05
2 KS/Leiftur – 2008
2 KV – 2014
4 KVA – 1998-99
12 Leiftur – 1975-85-88-93-94-01
2 Leiknir Fáskrúðsfirði – 2016
26 Leiknir Reykjavík – 1996-06-07-08-09-10-11-12-13-14-16-21-22
12 Njarðvík – 1983-85-86-07-08-10
4 Reynir Árskógsströnd – 1976-77
8 Reynir Sandgerði – 1977-83-97-07
24 Selfoss – 1976-77-80-86-94-08-09-11-13-14-15-16
2 Sindri – 2000
14 Skallagrímur – 1985-86-95-96-98-99-00
40 Stjarnan – 1975-90-91-93-95-98-99-01-06-07-08-17-18-19-20-21-22-23-24-25
12 Tindastóll – 1993-00-01-12-13-14
2 UMSS – 1975
47 Valur – 1929-32-41-78-79-81-82-84-87-88-89-90-91-92-00-03-17-18-19-20*-21-22-23-24-25
3 Vestri – 2024
10 Víðir – 1983-87-91-95-99
21 Víkingur Ólafsvík – 1975-05-06-07-08-09-11-12-14-15-17
71 Víkingur Reykjavík – 1929-32-41-78-79-81-82-84-86-88-89-90-91-92-94-95-96-97-98-00-01-04-05-08-09-10-12-13-17-18-19-20-21-22-23-24-25
22 Völsungur – 1976-77-80-83-85-86-87-88-96-05-13
49 Þór - 1975-76-80-81-84-87-88-89-90-92-95-96-97-98-01-02-05-06-07-08-09-10-12-15-16
8 Þróttur Neskaupstað – 1977-80-93-94
44 Þróttur Reykjavík – 1977-78-79-84-86-93-94-95-96-97-99-00-01-03-06-07-10-11-12-13-14-15
* Mættust aðeins einu sinni árið 2020 vegna kóvid.
Frá þúsundasta leiknum gegn Stjörnunni í fyrra hefur KA spilað 35 leiki og mótherjarnir hafa verið þessir: ÍA (4), ÍBV (4), Stjarnan (3), Víkingur R. (3), FH (3), KR (3), Vestri (3), Keflavík (2), Þór (2), Fram (2), Afturelding (2), Valur (2), Breiðablik (2).