Fara í efni
Íþróttir

Ingvi Þór genginn til liðs við Þórsara

Bjarki Ármann Oddsson, Ingvi Þór Guðmundsson og Hjálmar Pálsson, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs. Ljósmynd: Páll Jóhannesson.

Körfuboltamaðurinn Ingvi Þór Guðmundsson er genginn til liðs við Þór og leikur með liðinu út þetta leiktímabil hið minnsta. Hann mætti á fyrstu æfinguna hjá Þór í kvöld. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Ingvi Þór, sem er 22 ára gamall bakvörður og 194 sm á hæð, er uppalinn í Grindavík. Hann fór síðasta sumar til Dresden Titans í Þýskalandi en kom heim á ný í desember og hóf að leika með Haukum. Hann spilaði níu leiki með Hafnarfjarðarliðinu, skoraði 10,1 stig að meðaltali í leik, tók 3,6 fráköst og var með 2,9 stoðsendingar.

Áður en Ingvi hélt til Þýskalands lék hann stórt hlutverk í liði Grindavíkur, leiktíðina 2019 til 2020 var hann með 14,4 stig og 5 fráköst að meðaltali í leik í Domino‘s deildinni.

„Koma Ingva mun klárlega auka gæði og breidd liðsins. Leikjaálagið er mikið og að fá slíkan gæða leikmann í hópinn okkar styrkir okkur bara. Júlíus [Orri Ágústsson] er auðvitað meiddur og svo er alltaf þetta hefðbundna hnjask á hópnum eins og gengur og gerist,“ segir Bjarki Ármann Oddsson, þjálfari Þórs, á heimasíðu félagsins.

„Ingvi er virkilega öflugur leikmaður sem á mikið inni. Það sýndi hann á síðasta keppnistímabili þegar hann leysti leikstjórnendastöðuna hjá Grindavíkurliðinu sem fór alla leið í bikarúrslit.“

Bjarki segir Þórsara vænta mikils af Ingva Þór. „Ingvi er bæði góður playmaker, það er að finna liðsfélaga sína auk þess sem hann er úrvalsskytta. Hann er einnig öflugur varnarmaður en ég vænti mikils af honum á þeim enda vallarins,“ segir Bjarki.

Þess má geta að Jón Axel, bróðir Ingva Þórs, ein lykilmanna landsliðsins í körfubolta leikur með Fraport Skyliners í 1. deildinni í Þýskalandi. Faðir þeirra, Guðmundur Bragason, er landsleikjahæstur íslenskra körfuboltamanna frá upphafi.