Fara í efni
Íþróttir

Hildur Anna framlengir samning við Þór/KA

Hildur Anna með boltann í leik Þórs/KA gegn Grindavík/Njarðvík í sumar. Mynd: Ármann Hinrik.

Knattspyrnukonan Hildur Anna Birgisdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Þór/KA og er þar með samningsbundin út tímabilið 2028. Þetta kemur fram á vef liðsins.

„Hildur Anna er 19 ára, fædd 2007, og hefur verið í vaxandi hlutverki með liðinu það sem af er tímabili. Hún hefur komið við sögu í 11 af 13 leikjum liðsins í Bestu deildinni það sem af er, þar af fimm sinnum verið í byrjunarliðinu,“ segir í tilkynningunni. „Hún kom fyrst við sögu með meistaraflokki í Lengjubikarnum 2023 og fyrst í Bestu deildinni sumarið 2024. Hún spilaði 19 leiki í Bestu deildinni 2024 og skoraði tvö mörk, en í fyrrasumar var hún með Þór/KA fyrri hluta sumar og síðan með Völsungi í 2. deildinni seinni hlutann á lánssamningi frá Þór/KA.“

Samanlagt á hún að baki 59 meistaraflokksleik í Íslandsmóti, bikarkeppni og deildabikarkeppni, þar af 51 fyrir Þór/KA. Af þessum 59 leikjum eru 36 leikir í Bestu deildinni þar sem hún hefur skorað þrjú mörk.

Nánar hér: Hildur Anna Birgisdóttir undirritar nýjan samning