Fara í efni
Íþróttir

Harpa Jóhannsdóttir fyrsti leikmaður KA

Markvörðurinn Harpa Jóhannsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við KA og verður þar með fyrsti leikmaðurinn til að ganga til liðs við nýtt meistaraflokkslið félagsins í knattspyrnu. KA mun leika í 2. deild næsta sumar, eftir að félagið ákvað að endurnýja ekki samstarfssamning við Þór um rekstur sameiginlegs liðs, og stefnir að því að byggja upp öflugt lið fyrir komandi keppnistímabil.

Í frétt á vefsíðu KA kemur fram að Harpa sé uppalin hjá KA og hafi lengi verið viðriðin starf félagsins. Auk þess að hafa leikið með Þór/KA hefur hún sinnt þjálfun yngri flokka KA um árabil. Hún er 28 ára markvörður og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik aðeins 16 ára gömul, sumarið 2014.

Æfingar þegar hafnar

„Hið nýstofnaða lið KA leikur í 2. deild á komandi sumri og erum við ákaflega spennt fyrir því að byggja upp öflugt og metnaðarfullt umhverfi fyrir okkar stelpur. Koma Hörpu heim í KA er lykilskref í þeirri vegferð og erum við afar ánægð að hún sé sú fyrsta til að skrifa undir hjá liðinu. Stelpurnar hafa nú þegar verið að æfa undanfarnar vikur og eru frekari fréttir af leikmannamálum framundan næstu daga,“ segir í fréttinni.

Harpa hefur nær allan sinn feril leikið fyrir norðan, að undanskildum tíma í Bandaríkjunum þar sem hún lék með Seton Hall Pirates í New Jersey á skólastyrk. Hún hefur einnig leikið átta landsleiki með yngri landsliðum Íslands.

Hún lék með Hömrunum sumarið 2018 í næstefstu deild og tók þátt í öllum leikjum liðsins það tímabil. Þá lék hún á láni hjá Völsungi á Húsavík sumarið 2025. Í fréttinni á vef KA segir að undanfarin ár hafi tækifæri Hörpu hjá Þór/KA verið af skornum skammti og segir KA komu hennar vera mikilvægt skref í uppbyggingu nýja liðsins.