Fara í efni
Íþróttir

Golf: Veigar datt út í 64-manna úrslitum

Veigar Heiðarsson. Mynd: etsubucs.com.

Veigar Heiðarsson beið lægri hlut fyrir Íranum David Kitt í 64-manna úrslitum South of Ireland Men’s Amateur Open Championship golfmótsins í gær og er því úr leik.

Leikin var holukeppni og reyndist heimamaðurinn sterkari að þessu sinni. Hann vann holur 4-7-9-10 og var því kominn með fjögurra holu forskot. Veigar náði að klóra í bakkann með því að vinna holur 13 og 15 en nær komst hann ekki. Kitt hélt tveggja holu forskotinu og eftir 17. holuna var ljóst að sigurinn var í höfn og því ekki þörf á að leika þá 18.

David Kitt var með 2 holur í forskot eftir að 17 holur höfðu verið leiknar og úrslitin þá ráðin.

Lokatölur í viðureigninni 2/1. David Kitt gerði síðan enn betur eftir sigurinn gegn Veigari og vann líka viðureign sína í 32-manna úrslitunum í gær og er því kominn í 16-manna úrslit.

Veigar komst í 64-manna úrslit með því að enda í 42.-54. sæti af 150 keppendum eftir 36 holu höggleik.