Fara í efni
Íþróttir

Lilja Maren með besta hring dagsins

Lilja Maren Jónsdóttir horfir hér áhyggjufull á eftir boltanum á öðrum hring mótsins á föstudag. Hún lék best allra í kvennaflokki á lokadeginum. Mynd: gsimyndir.is.

Íslandsmótinu í höggleik í golfi lauk á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík í dag. Lilja Maren Jónsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar (GA) lék best allra í kvennaflokki í dag og endaði í sjöunda sæti, sem er frábær árangur. Veigar Heiðarsson stóð sig best af GA-kylfingum í karlaflokknum og endaði í 11.-12. sæti.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili varði Íslandsmeistaratitil sinn í kvennaflokki mjög örugglega og sigraði með fimm högga mun. Þetta er í fimmta sinn sem Guðrún Brá vinnur Íslandsmótið. Hún lék hringina fjóra á 283 höggum, eða einu höggi undir pari vallarins. Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur á 288 höggum og Ragnhildur Kristinsdóttir þriðja á 290 höggum. Þær voru í talsverðum sérflokki á mótinu og voru allan tímann í efstu þremur sætunum.

Lilja Maren lék frábært golf á síðasta keppnisdegi og raunar best allra í kvennaflokki. Hún lék hringinn á 68 höggum, þremur höggum undir pari. Hún fékk fjóra fugla á hringnum, og rétt eins og á öðrum keppnisdeginum þá var hún með flesta fugla allra keppenda í kvennaflokknum.

Skor og lokastaða hjá GA-keppendum í kvennaflokki:

  • Lilja Maren Jónsdóttir lék á 68 höggum í dag og endaði í 7. sæti á samtals 300 höggum (78-73-81-68)
  • Andrea Ýr Ásmundsdóttir lék á 78 höggum í dag og endaði í 12.-14 sæti á samtals 310 höggum (80-75-77-78)

Frábær dagur hjá Lilju Maren í dag. Besta skor dagsins í kvennaflokki og flestir fuglar.

Í karlaflokki var Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur allan tímann með örugga forystu og varði Íslandsmeistaratitil sinn jafnörugglega og Guðrún Brá. Hann lék hringina fjóra á 274 höggum, eða 10 höggum undir pari vallarins, og sigraði með fimm högga mun. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss varð annar á 279 höggum og Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar þriðji á 281 höggi.

Veigar Heiðarsson lék best af GA-kylfingum í karlaflokki en hátt skor á fyrsta hring gerði eiginlega út um vonir hans til að blanda sér fyrir alvöru í toppbaráttuna. Hann lék á 69 höggum síðasta daginn, tveimur undir pari.

Skor og lokastaða hjá GA-keppendum í karlaflokki:

  • Veigar Heiðarsson lék á 69 höggum í dag og endaði í 11.-12. sæti á samtals 287 höggum (79-68-71-69)
  • Barri Björgvinsson lék á 76 höggum í dag og endaði í 23. sæti á samtals 296 höggum (75-72-73-76)
  • Mikael Máni Sigurðsson lék á 71 höggi í dag og endaði í 24.-27. sæti á samtals 297 höggum (78-72-76-71)
  • Ágúst Már Þorvaldsson lék á 76 höggum í dag og endaði í 43.-44. sæti á samtals 305 höggum (73-78-78-76)

Mikael Máni Sigurðsson átti góða spretti í dag, lék á pari vallarins og fékk m.a. fimm fugla.