Golf: Patrik skaust í efsta sætið eftir 2 hringi
Patrik Róbertsson náði efsta sæti í meistaraflokki karla á Akureyrarmótinu í golfi í dag og Björk Hannesdóttir heldur forystu í meistaraflokki kvenna. Þetta var annar keppnisdagur af fjórum.
Alls eru 178 kylfingar skráðir til leiks að þessu sinni og skiptast niður í nokkra flokka eftir forgjöf, auk þess sem keppt er í öldungaflokkum 50 ára og eldri og 70 ára og eldri. Flokkarnir leika ýmist fjóra daga eða þrjá.
Landslið Íslands í golfi eru að keppa á EM þessa dagana og því vantar nokkra sterka keppendur í meistaraflokkum á Akureyrarmótinu.
Í meistaraflokki kvenna eru þrír keppendur og þar lék Björk Hannesdóttir best annan daginn í röð. Hún er nú með sex högga forystu á Andreu Ýri Ásmundsdóttur í öðru sætinu.
- Björk Hannesdóttir 78+73 = 151 högg
- Andrea Ýr Ásmundsdóttir 81+76 = 157 högg
- Kara Líf Antonsdóttir 83+82 = 165 högg

Björk Hannesdóttir lék best í meistaraflokki kvenna annan daginn í röð og hefur sex högga forskot þegar Akureyrarmótið er hálfnað.
Í meistaraflokki karla eru 18 keppendur og þar er keppnin gríðarlega jöfn og spennandi. Óskar Páll Valsson hafði nauma forystu eftir fyrsta daginn en þeir Patrik Róbertsson og Víðir Steinar Tómasson, ríkjandi Akureyrarmeistari, léku best í dag. Þeir voru báðir á 73 höggum en Óskar Páll lék á 77. Patrik er efstur eftir annan keppnisdag en Víðir Steinar, Óskar Páll og hinn 16 ára Ágúst Már Þorvaldsson koma þar á eftir.
Ágúst Már hefur leikið stöðugt golf það sem af er móti en sveiflurnar eru meiri hjá ýmsum öðrum. Ragnar Orri Jónsson var t.d. höggi á eftir efsta sætinu eftir fyrsta daginn en fataðist flugið í dag. Hann lenti í vandræðum á mörgum brautum, lék m.a. 3. brautina á 10 höggum, og lauk leik á 91 höggi eftir að hafa klárað á 74 í gær. Hann féll niður í 14. sætið fyrir vikið.
Ágúst Elí Björgvinsson, kannski betur þekktur sem markvörður KA í handknattleik, var lengst af í dag í efstu sætunum. Alveg þangað til á 17. og næstsíðustu brautinni. Hann þurfti 9 högg til að klára hana og féll við það úr öðru sætinu niður í það áttunda. Þriðja brautin reyndist honum líka erfið, 8 högg þar, en að öðru leyti lék hann glimrandi fínt golf.
Gríðarlegar sviptingar og mikil spenna í meistaraflokki karla þegar keppni er hálfnuð og ljóst að úrslitin eru hvergi nærri ráðin. Ennþá á um það bil helmingur keppenda raunhæfan möguleika á að hampa Akureyrarmeistarabikarnum og langt er síðan keppni hefur verið álíka jöfn og spennandi og í ár.
Staða efstu manna:
- Patrik Róbertsson 74+73 = 147 högg
- Víðir Steinar Tómasson 77+73 = 150 högg
- Ágúst Már Þorvaldsson 76+74 = 150 högg
- Mikael Máni Sigurðsson 77+74 = 151 högg
- Örvar Samúelsson 76+75 = 151 högg

Bjart framundan? Víðir Steinar Tómasson, ríkjandi Akureyrarmeistari, lék á 73 höggum í dag eins og Patrik Róbertsson.
Efst í öðrum flokkum
Í 1. flokki kvenna eru tveir keppendur og eftir tveggja daga keppni er áfram mjótt á munum:
- Ragnheiður Svava Björnsdóttir 86+78 = 164 högg
- Embla Sigrún Arnsteinsdóttir 87+81 = 168 högg
Fjórtán keppendur eru í 1. flokki karla og þar er mjög hörð keppni. Efstu menn eftir tvo daga:
- Gunnar Aðalgeir Arason 79+79 = 158 högg
- Þorsteinn Már Þorvaldsson 77+81 = 158 högg
- Steindór Kristinn Ragnarsson 81+81 = 162 högg
- Ingi Torfi Sverrisson 77+85 = 162 högg
Til marks um sviptingarnar í þessum flokki má nefna að Halldór Sigurjónsson lék best allra í dag, á 78 höggum. Fyrsta daginn notaði hann hins vegar 92 högg og var í næstneðsta sæti.
Í 2. flokki kvenna eru þrír keppendur og að afloknum tveimur keppnisdögum er Einrún Ósk Magnúsdóttir komin með gott forskot.
- Einrún Ósk Magnúsdóttir 96+88 = 184 högg
- Ragnhildur Jónsdóttir 102+98 = 200 högg
- Lísbet Hannesdóttir 104+97 = 201 högg
2. flokkur karla er mjög fjölmennur, alls 27 keppendur. Efstu menn eftir tvo daga:
- Friðfinnur Gísli Skúlason 83+82 = 165 högg
- Guðni Þór Björnsson 82+85 = 167 högg
- Valdimar Þengilsson 82+85 = 167 högg
Rétt eins og í 1. flokki karla er nokkur munur á dagsformi keppenda. Stefán Atli Agnarsson var neðarlega eftir fyrsta hringinn á 95 höggum en hann lék best allra í dag, á 80 höggum. Bæting um fimmtán högg – en svo eru líka dæmi um 15 högga sveiflu milli daga í hina áttina!
Keppni hófst í 3. flokki kvenna í dag en í þeim flokki eru leiknir þrír hringir. Sjö keppendur eru í þessum flokki. Efstu konur:
- Linda Rakel Jónsdóttir 95 högg
- Líney Björk Jónsdóttir 104 högg
- Karólína Birna Snorradóttir 106 högg
3. flokkur karla er fjölmennasti flokkurinn í ár en þar eru 28 keppendur: Efstu menn eftir tvo daga:
- Andri Snær Jóhannsson 90+87 = 177 högg
- Stefán Sigurður Hallgrímsson 89+90 = 179 högg
- Ólafur Helgi Rögnvaldsson 93+87 = 180 högg
Keppni í 4. flokki kvenna hófst í dag en þar eru leiknir þrír hringir og leikformið er punktakeppni en ekki höggleikur. Sex keppendur eru í flokknum og efstar eru:
- Álfheiður Atladóttir 8 punktar
- Eydís Elva Guðmundsdóttir 7 punktar
Níu keppendur eru í 4. flokki karla. Efstir eftir tvo keppnisdaga:
- Friðrik Tryggvi Friðriksson 103+97 = 200 högg
- Stefán Bjarni Gunnlaugsson 100+102 = 202 högg
- Andri Fannar Gíslason 105+98 = 203 högg
Í 5. flokki karla er leikin punktakeppni en ekki höggleikur og þar eru átta keppendur. Efstu menn eftir tvo keppnisdaga:
- Hlynur Friðriksson 9+15 = 24 punktar
- Ólafur Elvar Júlíusson 8+8 = 16 punktar
- Magnús G. Gunnarsson 7+8 = 15 punktar
Keppni hófst í dag í öldungaflokki kvenna 50+ og þar eru leiknir þrír hringir. Þetta er fjölmennasti kvennaflokkurinn en ellefu konur eru mættar til leiks. Efstar eftir fyrsta dag:
- Birgitta Guðjónsdóttir 82 högg
- Guðlaug María Óskarsdóttir 84 högg
- Fanný Bjarnadóttir 85 högg
Keppni hófst líkaí dag í öldungaflokki karla 50+ og þar eru leiknir þrír hringir. Þarna stefnir í hörkukeppni enda margir reyndir kylfingar í þessum flokki. Efstu menn af sautján keppendum eftir fyrsta dag:
- Guðmundur Sigurjónsson 72 högg
- Ólafur Auðunn Gylfason 73 högg
- Anton Ingi Þorsteinsson 74 högg
Í öldungaflokki karla 70 ára og eldri eru ellefu kappar og í dag var leikinn annar keppnisdagur af þremur. Efstir fyrir lokadaginn eru:
- Heimir Jóhannsson 76+78 = 154 högg
- Guðmundur E. Lárusson 80+87 = 167 högg
- Jón Halldórsson 90+85 = 175 högg
Þá er einnig keppt í flokki 14 ára og yngri og þar eru 8 keppendur. Eftir tvo keppnisdaga af þremur er Kristófer Áki Aðalsteinsson með gott forskot.
- Kristófer Áki Aðalsteinsson 66+73=139 högg
- Bjarki Þór Elíasson 84+75=159 högg
- Andri Mikael Steindórsson 80+81=161 högg
Heildarstöðu í öllum keppnisflokkum má sjá á þessari síðu.
Keppni á Akureyrarmótinu verður fram haldið á golfvellinum að Jaðri á morgun og eru allir velkomnir þangað til að fylgjast með bestu kylfingum Akureyrar etja kappi.