Golf: Allt í járnum fyrir lokadaginn
Það stefnir í æsipennandi lokadag hjá meistaraflokkunum á morgun á Akureyrarmótinu í golfi. Andrea Ýr Ásmundsdóttir saxaði verulega á forskot Bjarkar Hannesdóttur í kvennaflokki og aðeins einu höggi munar á þeim fyrir lokadaginn. Hjá körlunum halda sviptingarnar áfram og að afloknum þremur keppnisdögum af fjórum er Tumi Hrafn Kúld búinn að ná forystunni eftir glæsilega frammistöðu í dag.
Alls eru 178 kylfingar skráðir til leiks að þessu sinni og skiptast niður í nokkra flokka eftir forgjöf, auk þess sem keppt er í öldungaflokkum 50 ára og eldri og 70 ára og eldri. Flokkarnir leika ýmist fjóra daga eða þrjá.
Landslið Íslands í golfi eru að keppa á EM þessa dagana og því vantar nokkra sterka keppendur í meistaraflokkum á Akureyrarmótinu.
Í meistaraflokki kvenna eru þrír keppendur og Björk Hannesdóttir var komin með sex högga forystu eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Það forskot hélst óbreytt lengst af í dag en á síðustu fjórum holunum náði Andrea Ýr Ásmundsdóttir að vinna upp fimm af þessum sex höggum. Fyrir lokadaginn hefur Björk því aðeins eitt högg í forskot og ljóst að síðasti hringurinn verður æsispennandi.
- Björk Hannesdóttir 78+73+77 = 228 högg
- Andrea Ýr Ásmundsdóttir 81+76+72 = 229 högg
- Kara Líf Antonsdóttir 83+82+76 = 241 högg

Andrea Ýr Ásmundsdóttir slær upp úr glompu á fyrsta keppnisdegi. Hún saxaði verulega á forskot Bjarkar Hannesdóttur í dag og fyrir lokadaginn munar aðeins einu höggi á þeim. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Í meistaraflokki karla eru 18 keppendur og þar er keppnin gríðarlega jöfn og spennandi. Mjótt hefur verið á munum og margir kylfingar skipst á um forystusætið. í dag var það Tumi Hrafn Kúld sem lék best allra og 67 högg hans í dag er langbesti hringur mótsins. Hann fór hamförum í upphafi dags, fékk fugl á fyrstu fjórum holunum og steig ekki mörg feilspor eftir það. Hann fékk reyndar skramba á níundu brautinni, lék þessa par 4 holu á 6 höggum, en sú níunda reyndist mörgum erfið í dag. Tumi kom sér upp í efsta sætið með þessari frammistöðu og hefur tveggja högga forskot á ríkjandi Akureyrarmeistara, Víði Steinar Tómasson, fyrir lokadaginn. Stutt er í næstu menn þar á eftir og ljóst að síðasti hringurinn verður æsispennandi, líkt og í kvennaflokki.
Staða efstu manna:
- Tumi Hrafn Kúld 75+77+67 = 219 högg
- Víðir Steinar Tómasson 77+73+71 = 221 högg
- Patrik Róbertsson 74+73+76 = 223 högg

Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður KA í handknattleik, er ekki síður liðtækur á golfvellinum. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Efst í öðrum flokkum
Í 1. flokki kvenna eru tveir keppendur og þar hefur Ragnheiður Svava Björnsdóttir aukið forskot sitt smám saman fyrstu þrjá dagana. Fyrir lokadaginn hefur hún níu högga forystu.
- Ragnheiður Svava Björnsdóttir 86+78+80 = 244 högg
- Embla Sigrún Arnsteinsdóttir 87+81+85 = 253 högg
Fjórtán keppendur eru í 1. flokki karla og þar eru línur farnar að skýrast. Gunnar Aðalgeir Arason og Þorsteinn Már Þorvaldsson voru efstir og jafnir eftir fyrstu tvo dagana og eru ennþá hnífjafnir eftir þriðja daginn. Þeir eru með gott forskot á næstu menn og líklegt að baráttan um meistaratitilinn verði milli þeirra tveggja á morgun.
- Þorsteinn Már Þorvaldsson 77+81+80 = 238 högg
- Gunnar Aðalgeir Arason 79+79+80 = 238 högg
- Jón Svavar Árnason 79+84+83 = 246 högg
Í 2. flokki kvenna eru þrír keppendur og Einrún Ósk Magnúsdóttir hefur þar leikið kvenna best fyrstu þrjá dagana og er með ríflegt forskot fyrir lokadaginn.
- Einrún Ósk Magnúsdóttir 96+88+93 = 277 högg
- Lísbet Hannesdóttir 104+97+100 = 301 högg
- Ragnhildur Jónsdóttir 102+98+110 = 310 högg
2. flokkur karla er mjög fjölmennur, alls 27 keppendur. Þar er mjög mjótt á munum fyrir lokadaginn og ljóst að baráttan verður hörð allt til loka. Friðfinnur Gísli Skúlason er ennþá efstur næstu menn eru rétt á eftir.
- Friðfinnur Gísli Skúlason 83+82+86 = 251 högg
- Stefán Atli Agnarsson 95+80+78 = 253 högg
- Helgi Gunnlaugsson 85+85+83 = 253 högg
Annar keppnisdagur af þremur í 3. flokki kvenna var leikinn í dag. Sjö keppendur eru í þessum flokki og Linda Rakel Jónsdóttir hefur þar ellefu högga forskot fyrir lokadaginn.
- Linda Rakel Jónsdóttir 95+101 = 196 högg
- Karólína Birna Snorradóttir 106+101 = 207 högg
- Þórunn Sigríður Sigurðardóttir 107+104 = 211 högg
3. flokkur karla er fjölmennasti flokkurinn í ár en þar eru 28 keppendur. Mjótt er á munum fyrir síðasta keppnisdaginn og úrslitin hvergi nærri ráðin.
- Ólafur Helgi Rögnvaldsson 93+87+89 = 269 högg
- Arnar Páll Guðmundsson 95+86+89 = 270 högg
- Stefán Sigurður Hallgrímsson 89+90+95 = 274 högg
- Andri Snær Jóhannsson 90+87+97 = 274 högg
Tveimur keppnisdögum af þremur í 4. flokki kvenna er lokið en þar eru leiknir þrír hringir og leikformið er punktakeppni en ekki höggleikur. Sex keppendur eru í flokknum og efstar fyrir lokadaginn eru:
- Kara Rún Árnadóttir Schiöth 5+11 =16 punktar
- Margrét Jóna Kristmundsdóttir 4+9 = 13 punktar
- Álfheiður Atladóttir 8+5 =13 punktar
Keppni lauk í dag í 4. flokki karla. Níu keppendur voru í flokknum og Stefáni Bjarna Gunnlaugssyni tókst að skjótast í efsta sætið á lokadeginum og hampar því Akureyrarmeistaratitlinum. Arnþór Gylfi Finnsson og Friðrik Tryggvi Friðriksson komu jafnir þar á eftir og deila öðru sætinu.
Verðlaunahafar í 4. flokki karla:
- Stefán Bjarni Gunnlaugsson 100+102+102 = 304 högg
- Arnþór Gylfi Finnsson 110+105+93 = 308 högg
- Friðrik Tryggvi Friðriksson 103+97+108 = 308 högg
Í 5. flokki karla er leikin punktakeppni en ekki höggleikur og þar eru átta keppendur. Í þessum flokki eru spilaðir þrír hringir og lauk keppni í dag. Hlynur Friðriksson varð öruggur Akureyrarmeistari, með 33 punkta.
Verðlaunahafar í 5. flokki karla:
- Hlynur Friðriksson 9+15+9 = 33 punktar
- Ólafur Elvar Júlíusson 8+8+6 = 22 punktar
- Magnús G. Gunnarsson 7+8+6 = 21 punktur
Í öldungaflokki kvenna 50+ var annar hringur af þremur leikinn í dag. Þetta er fjölmennasti kvennaflokkurinn en ellefu konur eru mættar til leiks. Birgitta Guðjónsdóttir er áfram í efsta sæti fyrir lokahringinn en næstu konur eru skammt undan.
- Birgitta Guðjónsdóttir 82+85 = 167 högg
- Guðrún Gísladóttir 87+83 = 170 högg
- Fanný Bjarnadóttir 85+87 = 172 högg
Annar keppnisdagur af þremur í öldungaflokki karla 50+ var líka leikinn í dag og þar náði Ólafur Auðunn Gylfason forystunni af Guðmundi Sigurjónssyni. Munurinn fyrir lokadaginn er þó aðeins tvö högg og stefnir í æsispennandi keppni.
- Ólafur Auðunn Gylfason 73+74 = 147 högg
- Guðmundur Sigurjónsson 72+77 = 149 högg
- Konráð Vestmann Þorsteinsson 75+79 = 154 högg
Í öldungaflokki karla 70 ára og eldri lauk keppni í dag þegar þriðji hringur var spilaður. Heimir Jóhannsson hampar þar Akureyrarmeistaratitlinum en hann lék best allra alla keppnisdagana og vann með yfirburðum.
Verðlaunahafar í öldungaflokki karla 70+:
- Heimir Jóhannsson 76+78+74 = 228 högg
- Guðmundur E. Lárusson 80+87+87 = 254 högg
- Jón Halldórsson 90+85+86 = 261 högg
Keppni lauk einnig í dag hjá 14 ára og yngri en þar eru 8 keppendur. Kristófer Áki Aðalsteinsson vann þar með yfirburðum og er Akureyrarmeistari. Bjarki Þór Elíasson fær silfurverðlaun og þeir Sesar Blær Gautason og Andri Mikael Steindórsson skipta með sér bronsinu.
Verðlaunahafar í flokki 14 ára og yngri:
- Kristófer Áki Aðalsteinsson 66+73+71 = 210 högg
- Bjarki Þór Elíasson 84+75+77 = 236 högg
- Sesar Blær Gautason 87+79+76 = 242 högg
- Andri Mikael Steindórsson 80+81+81 = 242 högg
Heildarstöðu í öllum keppnisflokkum má sjá á þessari síðu.
Keppni á Akureyrarmótinu lýkur á morgun og eru allir velkomnir að Jaðri til að fylgjast með bestu kylfingum Akureyrar etja kappi og fagna með sigurvegurum í mótslok.