Fara í efni
Íþróttir

Ein með öllu – hvað er á dagskrá í dag?

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu – annar stærsti dagurinn er runninn upp. Margt er á dagskrá; fjölskylduskemmtun, markaðir, útiviðburðir, tónleikar, hlaup, leiksýningar „og lífleg stemning fylla bæinn frá morgni og langt fram á nótt,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. „Hvort sem gestir vilja njóta rólegrar fjölskyldustundar eða skella sér á stærstu tónleika helgarinnar er eitthvað fyrir alla á Akureyri. Skipuleggjendur hátíðarinnar minna á að nýta strætó og létta álagið á bílastæðum bæjarins. Aukaleiðir alla helgina, meðal annars úr miðbænum á milli kl 23-01.“ – Nánari upplýsingar á heimasíðu Einnar með öllu.

DAGSKRÁIN Í DAG, LAUGARDAG 

MA-TÚNIÐ
(ofan við Lystigarðinn)

Kl. 12:00 – Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland –Leikhópurinn Lotta kemur á Eina með öllu með glænýju sýninguna Litaland. Þau sýna á MA-túninu. Sýningarnar hjá Lottu eru orðnar fastur liður í verslunarmannahelginni á Akureyri og gleðja jafnt yngstu gestina sem foreldra og afa og ömmur. Miðar fást á staðnum eða á Tix.is.

MIÐBÆRINN

  • SÚLUR VERTICAL – ENDAMARKIÐ Þátttakendur í fjallahlaupinu Súlur Vertical ljúka hlaupinu í göngugötunni, von er á þeim fyrstu í hádeginu. Keppt er í 100 km, 43 km, 28 km og 18 km vegalengdum. Gestir eru hvattir til að taka vel á móti hlaupurunum og skapa skemmtilega stemningu.
  • Kl. 13:00 Markaðsstemning á Ráðhústorgi – Þar verður fjölbreytt úrval vara, handverks og annarra spennandi muna og tilvalið að gera góð kaup á meðan notið er hátíðarstemningarinnar.
  • Miðbæjarrölt –  „Verslanir, kaffihús, ísbúðir, veitingastaðir og barir taka vel á móti gestum. Miðbær Akureyrar verður líflegur allan daginn og kjörið að gefa sér góðan tíma til að rölta um og njóta þess sem bærinn hefur upp á að bjóða,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum Einnar með öllu.
  • Kl. 15:00-21:00 – Dagvaktin – DJ Ayobe heldur uppi stemningunni á útisvæðinu við Sjallann. Þar verður dansað undir berum himni og sannkölluð verslunarmannahelgarstemning myndast síðdegis.
  • Vamos & Fiesta – Opið kl. 11:30–03:30. Steinbakaðar pizzur, smáréttir, shuffleboard, píla og pool eru í boði allan daginn. Dansgólfið á efri hæð opnar kl. 23:00.
  • Á útisvæðinu fer fram Vamos Versló Fest, plötusnúðar að halda uppi stemningunni og NOUNOU Festival er kl 13-17 fyrir utan Vamos „en þar verður hægt að gera góð kaup!“
  • Kl. 16:00 – Sykurverk Sirkuslistakonan Húlladúlla verður við vestur inngang Sykurverks þar sem hún sýnir glæsilega hæfileika sína og skemmtir gestum á öllum aldri.

  • 17:00 – Útisvæði Múlabergs – Jói P og Króli mæta á útisvið Múlabergs og hita vel upp fyrir kvöldið með kraftmikilli tónlist og góðri stemningu.

AKUREYRARVÖLLUR

  • Kl. 11:00-19:00 – Náðu í armbandið þitt við suðurhlið (við Hólabraut) Akureyrarvallar, segir í tilkynningu. „Ef þú átt miða á Stadium tónleika FM95Blö, í Sjallann eða á Bogaball að þá þarftu að sækja armband, en armbandið er inngöngumiðinn þinn. Þú kemst ekki inn á svæðið án armbands. Skilríki verða skoðuð á viðburðum.
  • Kl. 13:00–23:30 – RISA tívolí – „Skemmtitækin verða á sínum stað fyrir alla aldurshópa og mikið fjör verður á svæðinu allan daginn. Miðar fást á staðnum.“
  • Kl. 12:00–21:00 – Hoppukastalaland Stærsta hoppukastalaland helgarinnar verður opið þar sem yngstu gestirnir geta hoppað, leikið sér og notið dagsins.
  • Matarvagnar og tónlist – Fjölbreyttir matarvagnar bjóða upp á kræsingar fyrir alla smekk og lifandi tónlist ásamt plötusnúðum sér um að halda uppi stemningunni á svæðinu.
  • Kl. 14:00–16:00 – Krakkaskemmtun í boði Kids Coolshop og Ísbúðarinnar verður glæsileg fjölskylduskemmtun þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.“

Á svið og svæði mæta meðal annars:

  • Lalli töframaður
  • Sólon og Dimma Dúskur
  • DEISÍ, átta ára söngvari og rappari sem flytur frumsamið lag
  • Blæja og Bára
  • Klói Kókómjólk
  • Hvolpasveitin í myndatöku

... og margt fleira sem gleður yngstu gestina. „Getur verið að Freyja sé að styrkja karamellukast?“ er spurt í tilkynningu.

ÖLL Í EINU – „FM95BLÖ Stadium“

Kl. 19:00 – Akureyrarvöllur – Svæðið verður opnað kl. 18:00 en tónleikarnir standa frá kl. 19:00 til miðnættis. Einn stærsti viðburður verslunarmannahelgarinnar fer fram á Akureyrarvelli þegar FM95BLÖ halda „Stadium tónleika“ í fyrsta sinn!

Glæsilegur hópur listamanna stígur á svið, meðal annars:

  • FM95BLÖ
  • DJ Muscleboy
  • Úlfur Úlfur
  • Birnir
  • Bent
  • Jóhanna Guðrún
  • Saint Pete
  • Sverrir Bergmann
  • Ragga Gísla
  • Daniil
  • Gemil

... og svo er að sögn von á leynigestum!

Tónleikasvæðið opnar kl. 18:00 og tónleikarnir standa frá kl. 19:00 til miðnættis.

Engin aldurstakmörk eru á tónleikana, en 20 ára aldurstakmark er á barsvæði. Börn 12 ára og yngri fá frían aðgang í fylgd fullorðinna.

Miðasalan á Tix.is er í fullum gangi og miðar seljast hratt.

BOGABALL Í BOGANUM

Strax að loknum „Stadium-tónleikunum“ færist fjör inn í Bogann þar sem Bogaballið tekur við, að því er segir í tilkynningu. Boginn, íþróttahúsið á félagssvæði Þórs í Þorpinu, verður opnað á miðnætti.

Fram koma meðal annars:

  • Færibandið og Diljá
  • Bent
  • Daniil
  • Úlfur Úlfur
  • og fleiri gestir.

20 ára aldurstakmark er á ballið. Miðasala á tix.is - stakir miðar & helgarpassar!

SJALLINN

„Það má líka henda sér í Sjallann, sem klikkar aldrei!“ segir í tilkynningunni. Húsið verður opnað kl 23:00. 18 ára aldurstakmark.

Fram koma

  • Birnir
  • Saint Pete
  • Úlfur Úlfur

Miðasala á tix.is!

GLERÁRTORG

Verslanir og veitingastaðir. Afgreiðslutímar:

  • Glerártorg: 10:00–17:00
  • Nettó: 09:00–20:00
  • Iðunn Mathöll: 11:30–22:00
  • Skor: 14:00–23:00
  • Verksmiðjan: 11:00–22:00

Nánari dagskrá má finna á heimasíðu Glerártorgs.

DALSBRAUT 1 

  • Kl. 12:00–16:00„POP-UP markaður “ – Íslenskir hönnuðir, smáframleiðendur og netverslanir bjóða upp á fjölbreytt úrval vara á vinsælum POP-UP markaði sem verður opinn alla helgina.

SKÓGARBÖÐIN

  • Opið kl. 09:00–23:30 – „Á milli viðburða er tilvalið að gefa sér stund í Skógarböðunum og njóta kyrrðarinnar áður en haldið er aftur út í fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar. Best að bóka fyrirfram á heimasíðu Skógarbaðanna.

GRÆNI HATTURINN

  • Kl. 21:00 – Ljótu Hálfvitarnir „Ljótu Hálfvitarnir halda áfram að trylla lýðinn á Græna hattinum. Miðasalan er í fullum gangi.“

CENTRUM KITCHEN & BAR

  • DJ Darri sér um tónlistina og heldur uppi góðri stemningu fram á kvöld.

LISTSÝNINGAR