Fara í efni
Íþróttir

Rólegt hjá lögreglu – enginn í fangageymslu

Fá mál komu til kasta lögreglu á Akureyri í gærkvöld að því er fram kemur í tilkynningu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra núna í morgunsárið.

Frá kl. 18 í gær og fram á nótt komu engin mál inn á borð lögreglunnar vegna óláta eða slagsmála og enginn gisti fangageymslu í nótt. Helstu mál sem lögregla fékkst við voru, að því er fram kemur í tilkynningunni:–

  • þrjú tilfelli komu upp þar sem einstaklingar voru aðstoðaðir vegna ölvunarástands.
  • Tvö tilfelli komu upp þar sem höfð voru afskipti af börnum sökum neyslu áfengis, foreldrar og barnavernd upplýst.
  • Þrjú umferðarlagabrot eru skráð en ekkert tilfelli kom upp þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa.