Fara í efni
Íþróttir

Bætti eigið Íslandsmet og varð bikarmeistari

Alex Cambray Orrason úr KA: Nýtt Íslandsmet og bikarmeistaratitill. Myndin er af kraft.is.

Lyftingamaðurinn Alex Cambray Orrason úr KA gerði það gott á Bikarmeistaramóti í kraftlyftingum með búnaði sem fram fór í Miðgarði í Garðabæ um liðna helgi. Alex bætti sitt eigið Íslandsmet í hnébeygju og varð bikarmeistari.

Með því að lyfta 358 kg bætti Alex sitt eigið Íslandsmet um hálft kíló, en fyrra metið var 357,5 kg og setti hann það á Evrópumótinu í Pilsen fyrr á árinu. Með sigrinum núna tryggði hann sér jafnframt bikarmeistaratitilinn annað árið í röð.

Fjallað er um afrek Alex á heimasíðu KA og á vef Kraftlyftingasambands Íslands.