Fara í efni
Íþróttir

Allt hægt ef við fáum geggjaðan stuðning

Leikmenn KA/Þórs og þjálfarar rétt fyrir brottför frá KA-heimilinu í morgun. Þar var boðið upp á morgunverðarveislu sem markvörðurinn Matea Lonac og fleiri útbjuggu og síðan haldið suður á bóginn. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Stelpurnar í KA/Þór ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í kvöld þegar þær mæta Val í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta í Haukahúsinu í Hafnarfirði. Raunar má segja að þær ráðist á garðinn þar sem hann er hæstur því Valur er líklega besta lið landsins um þessar mundir, er altjent á toppi Olísdeildarinnar og firnasterkt, en það fallega við íþróttirnar er að þar getur allt gerst.

  • Viðureign KA/Þórs og Vals hefst kl. 20:15. Sigurliðið mætir Fram eða Haukum í úrslitaleik á laugardag.

Trúin flytur fjöll, segir einhver staðar og Stelpurnar okkar í KA/Þór hafa vonandi trú á verkefninu. Ástæða er til að hvetja alla norðanmenn á borgarhorninu – a.m.k. alla þá sem vettlingi geta valdið í því leiðindaveðri sem ku hrella sunnanmenn í augnablikinu – til að gera sér ferð í Hafnarfjörð og styðja við bakið á stelpunum.

„Við þurfum að leika mjög agað og reyna að koma í veg fyrir að Valsliðið fái tækifæri til að gera auðveld mörk,“ sagði Jónatan Magnússon þjálfari KA/Þórs við akureyri.net. Það er auðvitað hverju orði sannara; Valsliðið er fljótt að refsa með hraðaupphlaupi ef mótherjinn missir boltann í sókn. 

Feðginin Guðmundur Friðriksson og dætur hans, leikmennirnir Bergrós Ásta og Hafrún Linda, við morgunverðarhlaðborðið í KA-heimilinu í morgun. Þau komu að því að útbúa kræsingarnar en morgunverðardrottningin Matea Lonac var of hlédræg til að mæta fyrir framan myndavélina ... 

  • Powerade-bikar kvenna í handbolta, undanúrslit
    Ásvellir í Hafnarfirði kl. 18:00
    Fram - Haukar
  • Útsending: Beint á RÚV 2

  • Powerade-bikar kvenna í handbolta, undanúrslit
    Ásvellir í Hafnarfirði kl. 20:15
    Valur - KA/Þór
  • Útsending: Beint á RÚV 2

Sigurvegarar leikja kvöldsins mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar kl. 15:30 á laugardaginn í íþróttahúsi Hauka í Hafnarfirði, Kuehne+Nagel höllinni.