Fara í efni
Íþróttir

Aldís valin – fjórar úr KA/Þór í landsliðinu

Aldís Ásta Heimisdóttir fagnar marki í einum úrslitaleikjanna við Val um Íslandsmeistaratitilinn í vor. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Aldís Ásta Heimisdóttir, sem lék frábærlega síðasta vetur þegar KA/Þór varð Íslandsmeistari í handbolta, var í dag valin í landsliðshópinn í fyrsta skipti. Þrír aðrir leikmenn KA/Þórs eru í hópnum. Framundan eru leikir við Svíþjóð og Serbíu í undankeppni Evrópumótsins.

Rut Jónsdóttir, sem verið hefur fastamaður í liðinu í mörg ár, Ásdís Guðmundsdóttir og Unnur Ómarsdóttir, sem kom heim í KA/Þór í sumar, eru einnig í hópnum.

Þá eru tveir leikmenn KA/Þórs í B-landsliði sem hefur HSÍ komið á fót. Það eru Sunna Guðrún Pétursdóttir, markvörður, og Rakel Sara Elvarsdóttir, hornamaðurinn stórefnilegi. Liðið kemur saman til æfinga í október og tekur þátt í æfingamóti í Tékklandi í nóvember.

HSÍ hefur ráðið þær Hrafnhildi Ósk Skúladóttur og Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur í þjálfarateymi kvennalandsliðsins og verða þær með umsjón yfir B landsliði kvenna ásamt Arnari Péturssyni, landsliðsþjálfara, og Ágústi Jóhannssyni.

A-landsliðið hefur leik í undankeppni EM 2022 á móti Svíþjóð ytra 7. október og mætir Serbíu á Ásvöllum 10. október.

Landsliðshópurinn er þannig skipaður - leikir/mörk í sviga:

Markverðir
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Vendsyssel (30/0)

Hafdís Renötudóttir, Fram (28/1)

Saga Sif Gísladóttir, Val (4/0)

Aðrir leikmenn
Aldís Ásta Heimisdóttir, KA/Þór (0/0)

Ásdís Guðmundsdóttir, KA/Þór (7/10)

Rut Jónsdóttir, KA/Þór (99/209)

Unnur Ómarsdóttir, KA/Þór (29/28)

Berglind Þorsteinsdóttir, HK (0/0)

Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen (23/20)

Elísa Elísdóttir, ÍBV (0/0)

Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (5/4)

Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörnunni (42/80)

Hildigunnur Einarsdóttir, Val (81/82)

Lovísa Thompson, Val (24/50)

Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram (31/41)

Sandra Erlingsdóttir, EH Aalborg (3/5)

Sunna Jónsdóttir, ÍBV (58/43)

Thea Imani Sturludóttir, Val (45/58)

Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK (3/5)

B landsliðshópurinn er þannig skipaður:

Markverðir
Eva Dís Sigurðardóttir, Aftureldingu

Sara Sif Helgadóttir, Val

Sunna Guðrún Pétursdóttir, KA/Þór

Aðrir leikmenn
Auður Ester Gestsdóttir, Val

Ásta Björk Júlíusdóttir, Haukum

Birta Lind Jóhannsdóttir, Haukum

Birta Rún Grétarsdóttir, Oppsal

Elín Rósa Magnúsdóttir, Val

Elna Ólöf Guðjónsdóttir, HK

Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram

Ída María Stefánsdóttir, Val

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, HK

Jónína Hlín Hansdóttir, Fram

Katla María Magnúsdóttir, Stjörnunni

Katrín Tinna Jensdóttir, Volda

Lena Margrét Valdimarsdóttir, Stjörnunni

Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór

Sara Dögg Hjaltadóttir, Gjerpen

Starfsfólk
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari

Ágúst Jóhannsson, aðstoðarþjálfari

Hlynur Morthens, markmannsþjálfari

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, aðstoðarþjálfari

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, aðstoðarþjálfari

Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, liðsstjóri

Ágústa Sigurjónsdóttir, sjúkraþjálfari

Særún Jónsdóttir, sjúkraþjálfari

Tinna Jökulsdóttir, sjúkraþjálfari

Jóhann Róbertsson, læknir