Fara í efni
Íþróttir

Aldís Kara og Gunnar Aðalgeir best hjá SA

Aldís Kara Bergsdóttir og Gunnar Aðalgeir Arason voru heiðruð í vikunni, þegar stund gafst milli stríða í þéttri dagskrá Aldísar Köru, en þau eru íþróttafólk Skautafélags Akureyrar árið 2021. „Aldís var valin skautakona ársins hjá listhlaupadeild á dögunum og skautakona ársins hjá Skautasambandi Íslands árið 2021. Gunnar Arason var varinn íshokkímaður íshokkídeildar SA árið 2021. Gunnar og Aldís eru einstaklega vel að þessum titlum komin eru tilnefnd af SA til Íþróttafólks Akureyrar,“ segir á vef Skautafélagsins.