Íþróttir
Aldís áfram hjá Skara – Vann fyrsta úrslitaleik
07.05.2025 kl. 06:00

Aldís Ásta Heimisdóttir í leik með íslenska landsliðinu. Mynd af handbolti.is - Hafliði Breiðfjörð
Handboltakonan Aldís Ásta Heimisdóttir hefur skrifað undir nýjan samning til eins árs við sænska félagið Skara HF og hélt upp á það í gær með því að fara fyrir liðinu í sigri, 26:25, á IK Sävehof í fyrsta úrslitaleik liðanna um sænska meistaratitilinn. Leikið var á heimavelli Skara. Þetta kom fram á handboltavef Íslands, handbolti.is, í gærkvöldi.
Aldís Ásta, sem hefur leikið mjög vel í Svíþjóð, skoraði sex mörk í gær og gaf fimm stoðsendingar. „Fyrir troðfullri keppnishöllinni, 1.150 áhorfendur, var tilkynnt skömmu fyrir leikinn að Aldís Ásta hafi skrifað undir nýjan samning til eins árs við Skara HF. Hún hefur verið hjá Skara HF frá 2022,“ segir í fréttinni.
Nánar hér á handbolti.is