Fara í efni
Íþróttir

Íþróttir á útivöllum á fjörugum föstudegi

Fjörugur föstudagur í íþróttunum, bara ekki á Akureyri. Fjögur Akureyrarlið leika í þremur íþróttagreinum í kvöld, en allir leikirnir eru á útivelli.

  • KA hefur farið vel af stað í Olísdeildinni í handbolta í haust, situr í 2. sæti deildarinnar með átta stig úr fyrstu fimm leikjunum, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka. En nú er komið að bikarkeppninni þar sem KA sækir Víking heim í kvöld í 16 liða úrslitum. Víkingur er í 10. sæti Olísdeildarinnar með einn sigur. Áhugavert að eini sigurleikur Víkings var gegn Þór og eini tapleikur KA einnig gegn Þór.
  • Karlalið Þórs í körfubolta hóf keppni í 1. deildinni um liðna helgi með tapi, líklega gegn sterkasta liði deildarinnar, Þór frá Þorlákshöfn. Í kvöld er komið að útileik gegn Hamri í Hveragerði.
  • Lið KA/Þórs hefur ekki náð sér í stig í fyrstu fjórum umferðum Olísdeildar kvenna í handbolta, en vonandi breytist það í kvöld þegar KA/Þór sækir Gróttu heim á Seltjarnarnesið í fimmtu umferð mótsins.
  • SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí, sækja Fjölni heim í Egilshöllina í kvöld í fimmta leik sínum í Toppdeildinni á tímabilinu. Hingað til hefur liðið unnið U20 liðið tvívegis, en tapað bæði fyrir Fjölni og SR á útivelli.

KA sækir Víkinga heim í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar.

  • Handbolti
    Powerade-bikarinn, 8 liða úrslit
    Virkið í Safamýri kl. 19
    Víkingur - KA

Eftir stórt tap í fyrstu umferðinni er komið að útileik hjá karlaliði Þórs í körfuboltanum, heimsókn til Hamars í Hveragerði.

  • Körfubolti
    1. deild karla, 2. umferð
    Hveragerði kl. 19:15
    Hamar - Þór

KA/Þór þarf sárlega á sigri að halda í Olísdeild kvenna í handbolta. Vonandi krækja þær í sín fyrstu stig á Seltjarnarnesinu.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 5. umferð
    Hertz-höllin á Seltjarnarnesi kl. 19:30
    Grótta - KA/Þór

Emil Alengård, þjálfari hokkíliða SA, heimsækir sinn gamla vinnustað, skautasvellið í Egilshöllinni, með SA Víkingum.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautasvellið í Egilshöll kl. 19:45
    Fjölnir - SA