Handbolti: Öruggur sigur KA gegn ÍBV
KA tók á móti ÍBV í kvöld í efstu deild karla í handknattleik, Olísdeildinni, og vann öruggan 31:25 sigur. Eftir tiltölulega jafnan fyrri hálfleik áttu Eyjamenn ekkert svar við góðum leik KA-manna í seinni hálfleik. KA fylgir Haukum eftir eins og skugginn í toppbaráttu deildarinnar.
Í fyrri hálfleik var jafnt á nánast öllum tölum lengi framan ef en KA þó yfirleitt á undan að skora. Undir lok hálfleiksins sigu KA-menn þó framúr og náðu þriggja marka forystu en ÍBV skoraði síðasta mark hálfleiksins og því var forskotið bara tvö mörk í leikhléi, 13:11.
KA skoraði fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks og náðu þægilegri forystu sem gestunum tókst aldrei að vinna upp. KA-liðið var mun betra en ÍBV og mestur varð munurinn 8 mörk, 24:16, um miðjan seinni hálfleikinn. Eftir þetta var sigurinn aldrei í hættu og lokatölur 31:25 eins og áður sagði.
KA í 2. sæti með 4 sigra í 5 leikjum
Dagur Árni Heimisson hefur skorað mest KA-manna það sem af er móti og hann var markahæstur með 11 mörk, flest þeirra reyndar úr víti. Dagur Gautason og Jens Bragi Bergþórsson komu næstir þar á eftir og nýttu færi sín mjög vel. Jens Bragi átti auk þess góðan leik í vörninni og þeir Daníel Matthíasson stöðvuðu ófáar sóknarlotur gestanna. Markvarsla KA var líka mun betri en gestanna en Ágúst Elí Björgvinsson varði 20 af þeim 45 skotum sem Eyjamenn komu á markið.
KA hefur þar með unnið 4 af fyrstu 5 leikjunum í deildinni og er sem stendur í öðru sæti á eftir Haukum, sem hafa fullt hús stiga. Næsti leikur liðsins er útileikur gegn Stjörnunni föstudaginn 16. október.
Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 11 (8 víti), Dagur Gautason 6, Jens Bragi Bergþórsson 5 Arnór Ísak Haddsson 4, Andri Freyr Friðriksson 2, Einar Birgir Stefánsson 1, Morten Linder 1, Patrekur Stefánsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 20.
Mörk ÍBV: Kristófer Ísak Bárðarson 6, Gary Emanuel Philips 5, Daníel Þór Ingason 3, Sveinn José Rivera 3 (1 víti), Atli Steinn Arnarson 2, Magnús Dagur Jónatansson 2, Anton Frans Sigurðsson 1, Dagur Arnarsson 1 (1 víti), Haukur Leó Magnússon 1, Sigtryggur Daði Rúnarsson 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 7, Morgan Goði Garner 4.