Akureyri gegn Eyjum – Þór/KA heima, KA úti
Segja má að það sé Eyjaþema í fótboltanum í dag, tvö Akureyrarlið að takast á við lið frá ÍBV. Þór/KA á heimaleik í Bestu deild kvenna og KA útileik í Bestu deild karla.
Eftir sex tapleiki í röð náði KA loks að vinna leik í 14. umferð mótsins þegar liðið tók á móti ÍA og það með dramatískum hætti því þriðja markið í 3-2 sigri KA kom úr vítaspyrnu með næstsíðustu spyrnu leiksins. KA er þó enn í 10. sæti deildarinnar, er með 13 stig úr 14 leikjum, en bilið í næstu lið styttist því ÍA, ÍBV og Stjarnan eru í sætunum fyrir ofan með 15 stig. Það er því líka stutt upp í efri hlutann því Keflavík er í 6. sætinu með 16 stig. Næstu andstæðingar KA eru ÍBV, en liðin mætast á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 15. umferð
Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum kl. 14
ÍBV - KA
Þessi lið mættust á Akureyri snemma í maí og þar hafði KA 2-0 sigur.
- - -
Takturinn í Bestu deild kvenna hefur verið fremur undarlegur það sem af er sumri. Eftir mjög þétta leikjadagskrá í lok apríl og allan maímánuð hafa landsleikjahlé A-landsliðsins og þátttaka U19 landsliðsins gefið liðunum aukafrí, en að loknu U19 hléinu spilar Þór/KA þrjá leiki á 11 dögum. Annar leikurinn í þeirri törn var á þriðjudag, en í dag er komið að heimaleik gegn ÍBV.
Eftir tap á útivelli fyrir Stjörnunni á þriðjudag færðist Þór/KA aftur niður í 10. sætið því Fram vann sinn leik. Það er þó ekki langt í næstu lið því þrjú lið í sætunum fyrir ofan Þór/KA eru með tíu stig, aðeins stigi meira en Þór/KA.
- Besta deild kvenna í knattspyrnu, 13. umferð
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 16
Þór/KA - ÍBV
Leikur Þórs/KA og ÍBV er í 13. umferð mótsins, en eins og fyrr er 10. umferðin enn óspiluð því hún var færð aftur fyrir 18. umferðina. Fyrri leikur liðanna fór fram í Eyjum snemma í maí og lauk honum með 2-0 sigri ÍBV.