Íþróttir
Akureyrarmótið í golfi að baki – MYNDIR
14.07.2025 kl. 11:00

Mynd: Skapti Hallgrímsson
Akureyrarmótið í golfi fór fram frá miðvikudegi til laugardags eins og varla hefur farið framhjá lesendum Akureyri.net.
Lilja Maren Jónsdóttir og Víðir Steinar Tómasson urðu Akureyrarmeistarar í meistaraflokkum; Lilja, sem er aðeins 16 ára, byrjaði vel og var í fyrsta sæti allt mótið en Víðir Steinar náði hins vegar ekki forystu fyrr en tvær holur voru eftir af mótinu – á 16. holu.
Þetta er fyrsti Akureyrarmeistaratitill Lilju Marenar en Víðir Steinar fagnaði sigri í annað sinn; hann varð einnig Akureyrarmeistari 2016.