Fara í efni
Íþróttir

Adam Ægir sagður á leið til KA frá Val

Adam Ægir Pálsson í leik með Val gegn KA vorið 2023 en hann reyndist KA erfiður í þessum leik og skoraði tvö marka Vals í 4:0 sigri. Mynd: Þórir Tryggvason.

Fréttasíðan fotbolti.net greindi frá því í hádeginu að Adam Ægir Pálsson, sem verið hefur í herbúðum knattspyrnuliðs Vals frá árinu 2023, verði kynntur sem leikmaður KA síðar í dag. Adam Ægir hefur ekki fengið mörg tækifæri í Valsliðinu undanfarið og nokkur félög sýndu áhuga á að fá hann í sínar raðir. Samkvæmt þessum fregnum virðist KA hafa orðið hlutskarpast í því kapphlaupi.

Adam Ægir er tæplega þrítugur kantmaður sem Valur keypti af Víkingi árið 2023. Hann hefur leikið 150 deildarleiki í meistaraflokki á ferlinum og skorað í þeim 29 mörk.

Eftir því sem fram kemur í fréttinni mun Adam Ægir gera samning við KA út þessa leiktíð en hann var líka orðaður við Þór, Fram og Keflavík. Hann lék fyrstu leiki Vals á þessu tímabili, skoraði þrjú mörk og lagði upp eitt, en hefur ekki komið við sögu hjá liðinu síðan í maí og ekki æft með Val undanfarið.