Verslunarmannahelgin: Rigning, súld og svalt
Miðað við veðurspá fyrir næstu daga eins og hún lítur út í dag, spá Veðurstofu Íslands, er ekki endilega tilefni til bjartsýni fyrir Akureyringa og gesti þeirra um verslunarmannahelgina. Reiknað er með norðan- og norðvestanátt, talsverðri úrkomu norðanlands á föstudag, og víða súld og svölu veðri um helgina.
Akureyringar geta ef til vill haldið áfram í þekkta trú sína um veðrið og vonað að neikvæðar spár eigi bara við um Norðurland utan Akureyrar. Er ef til vill kominn tími til að Veðurstofan breyti spásvæðum sínum?
Í dag hefur verið norðlæg og breytileg átt á landinu og ekkert sérlega hlýtt norðanlands þó að mestu hafi verið bjart í veðri í höfuðstað Norðurlands. Samkvæmt spá Veðurstofunnar síðdegis verður heldur hægari vindur á morgun, skýjað og dálítil væta öðru hverju, en bjart með köflum og stöku síðdegisskúrir um landið vestanvert, með líkum á hellidembum. Hiti 6 til 17 stig, en mildast á Suðvestur- og Vesturlandi.
Veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir næstu daga lítur þannig út:
Miðvikudagur 27. júlí
Norðlæg átt 5-10 m/sek., en 10-15 austast á landinu. Rigning á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu sunnan- og vestantil. Hiti 6 til 17 stig, mildast syðst.
Fimmtudagur 28. júlí
Norðvestan 5-13 m/sek. Væta með köflum á Norður- og Austurlandi og hiti 7 til 11 stig, en þurrt annars staðar með hita 10 til 17 stig.
Föstudagur 29. júlí
Norðan og norðvestan 5-13 og rigning með köflum, en talsverð úrkoma norðanlands. Þurrt að mestu sunnan- og vestantil. Hiti breytist lítið.
Laugardagur og sunnudagur, 31. júlí og 1. ágúst
Norðan- og norðvestanátt. Víða rigning eða súld og svalt, en úrkomulítið og mildara sunnan- og suðvestantil.