Verslunarmannahelgin: Aukinn akstur strætó
Senn líður að verslunarmannahelginni og undirbúningur að sjálfsögðu kominn á fullt á ýmsum sviðum. Skipuleggjendur Einnar með öllu, fjölskylduhátíðarinnar sem fest hefur sig í sessi á Akureyri, huga nú að samgöngum og bílastæðum innanbæjar með öflugri hætti en áður.
Strætisvagnar Akureyrar munu í samstarfi við skipuleggjendur Einnar með öllu bjóða upp á mjög aukna þjónustu um helgina í því skyni að draga úr umferð einkabíla og koma fólki öruggu til síns heima að lokinni skemmtidagskrá á laugardags- og sunnudagskvöld. Gestir hátíðarinnar, heimafólk og gestir bæjarins, eru því hvattir til að nýta sér umhverfisvænan samgöngumáta, taka strætó, hjóla eða ganga. Vissulega verður bílastæðum fjölgað við hátíðarsvæði í miðbænum, en skipuleggjendur biðla til fólks að sýna tillitssemi og leyfa P-merktum bílum fólks sem á óhægt um gang að njóta forgangs, sem og barnafjölskyldum.
Að jafnaði gengur aðeins leið 6 rangsælis um bæinn um helgar, frá frá hádegi fram til kl. 19, en um komandi verslunarmannahelgi verður breyting á.
- Fjórir vagnar verða í gangi laugardag og sunnudag, frá hádegi fram á kvöld.
- Fimm vagnar munu koma farþegum heim eftir stórtónleika á laugardags- og sunnudagskvöld.
- Að auki verður boðið upp á akstur í Kjarnaskóg á Skógardeginum, kl. 13-16 á sunnudag.
Ítarlegri upplýsingar um leiðakerfið um helgina má finna á vefsíðu Einnar með öllu.
Áfram er frítt fyrir farþega með Strætisvögnum Akureyrar eins og aðra daga.