Þyrla LHG á Akureyri: 1,1 milljarður á ári?
Kostnaður við að bæta fjórðu þyrlunni í flota Landhelgisgæslunnar og staðsetja hana varanlega á Akureyri gæti numið um 1,1 milljarði króna á ári. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins í gær við fyrirspurn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
Landhelgisgæslan hefur nú yfir þremur þyrlum að ráða en yrði ákveðið að staðsetja eina á Akureyri yrði þeirri fjórðu bætt við í flotann og kostnaður við leigu á vélinni er inni í áðurnefndri tölu.
„Bráðabirgðaútreikningar Landhelgisgæslunnar gefa til kynna að fastur rekstrarkostnaður þyrlu og starfsstöðvar á Akureyri gæti numið um 1,1 milljarði króna á ári, með fyrirvara um óvissu vegna leiguverðs þyrlu og kjarasamninga áhafna. Gera má ráð fyrir að ferli þess að taka á leigu nýja þyrlu kunni að taka eitt til þrjú ár,“ segir í svari ráðuneytisins til nefndarinnar.
600 milljóna „einskiptiskostnaður“
„Til viðbótar við árlegan rekstrarkostnað er áætlaður einskiptiskostnaður um 600 milljónir króna vegna uppbyggingar flugskýlis sem er stærsti kostnadarliðurinn, þjálfunar tveggja nýrra flugmanna, viðhaldsstöðvar á Akureyri og viðbótarbúnaðar fyrir áhöfn og þyrlu.“
Í svari ráðuneytisins segir að framangreindar fjárhæðir séu bráðabirgðatölur „sem eingöngu eru til viðmiðunar á þessu stigi en þar sem þær byggja á ófullmótuðum forsendum kunna upphæðir að taka breytingum þegar endanleg áætlun og forsendur liggja fyrir.“
Í bréfi dómsmálaráðuneytisins til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir að fjórða þyrla Landhelgisgæslu Íslands og sjöunda áhöfnin „myndi auka verulega getu Landhelgisgæslunnar til að halda uppi viðunandi þyrluviðbragðsgetu á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Í stað þess að hafa tvær þyrlur til taks um 60% ársins eins og nú er má gera ráð fyrir að tvær þyrlur yrðu til taks 95-98% hluta árs, samkvæmt mati Landhelgisgæslunnar.“
Föst viðvera á Akureyri yrði bylting
Það hefur lengi verið í umræðunni að þyrla þyrfti að vera staðsett á Akureyri og oft verið fjallað um málið á Alþingi. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagði í maí á síðasta ári að til stæði að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar yrði staðsett á Akureyri og hún styddi það heilshugar.
- Frétt akureyri.net um ummæli Kristrúnar:
Til stendur að þyrla verði á Akureyri
- Umsögn Landhelgisgæslunnar í apríl 2025 um tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Gæslan: Föst viðvera á Akureyri yrði bylting
Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður hefur lengi bent á mikilvægi þess að þyrla yrði staðsett á Akureyri. „Þegar ég hóf að tala fyrir þessu á Alþingi fyrir nokkrum árum var það einkum vegna öryggis landsbyggðarinnar, jafnræði í aðgengi að björgunarþjónustu og nauðsyn þess að stytta viðbragðstíma í neyð,“ sagði hann í grein á akureyri.net í maí á síðasta ári. „En nú hafa bæst við sterkari rök. Á síðustu árum hafa flotaheimsóknir, herskip og jafnvel kjarnorkukafbátar gert sig heimakomna á Eyjafirði. Norðausturhornið er ekki lengur jaðar – það er orðið miðpunktur í alþjóðlegri athygli,“ sagði Njáll Trausti.
- Grein Njáls Trausta um málið: