Fara í efni
Fréttir

Þórhallur gefur kost á sér í 2.-3. sæti

Þórhallur Jónssonhefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.  Hann hefur setið í bæjarstjórn undanfarin fjögur ár.

Þórhallur segist í tilkynningu hafa mikinn áhuga á uppbyggingu Akureyrar sem höfuðstað Norðurlands. Síðastliðið ár hefur hann gegnt formennsku í skipulagsráði Akureyrarbæjar.

„Skipulags- og atvinnumál eru mér sérstaklega hjartfólgin og ég tel að við eigum mikið sóknarfæri á þeim sviðum á næstu árum til að gera góðan bæ betri. Framtíð Akureyrar er björt og mikil fólksfjölgun varð í bænum á síðasta ári, talsvert meira en árin þar á undan. Það helst í hendur við þá staðreynd að uppbygging íbúða á síðastliðnu ári er sú mesta í áraraðir,“ segir í tilkynningu frá Þórhalli.

Þar segir einnig:

„Fyrirtækjum er að fjölga og mörg fyrirtæki eru að byggja og stækka við sig. Samþykkt nýs miðbæjarskipulags hefur ýtt úr vör nýbyggingu verslunarrýmis í miðbænum. Austurbrú við Drottningabraut er í byggingu og verður stórglæsileg íbúabyggð miðsvæðis. Ný millilandaflugstöð er að fara af stað í byggingu ásamt því að tvær nýjar Heilsugæslustöðvar verða teknar í notkun á árunum ´23 og ´24. Nýtt öldrunarheimili er að fara í byggingu og svo er stækkun sjúkrahússins í sjónmáli. Gatnagerð er hafin í nýju Holtahverfi og nýtt skipulag fyrir vistvænt Móahverfi fyrir um 3000 íbúa er að klárast. Allt er þetta mikil framfararskref sem ég er stoltur af að hafa átt þátt í.

Í nýju Holtahverfi eru lóðir fyrir íbúðir ætlaðar eldri borgurum og einnig er gert ráð fyrir slíkum íbúðum með félagsmiðstöð í nýju Móahverfi í nálægð við torg og þjónustubyggingar. Í þessu nýja hverfi er einnig gert ráð fyrir þjónustukjarna, sleðabrekku, kálgarði og íþróttasvæði.

Með auknu aðgengi að raforku á svæðinu skapast ný og fleiri atvinnutækifæri og enn betri búsetuskilyrði. Sem Akureyringur veit ég að það er hvergi betra að búa, stutt er í alla þjónustu, aðstaða til útivistar og íþróttaiðkunar er til fyrirmyndar og auðvelt að komast hratt og vel milli bæjarhluta. Akureyri er og á að vera meira en bara bær, við erum miðstöð þjónustu og afþreyingar fyrir stóran hluta landsins. Í því forystuhlutverki liggja okkar stærstu tækifæri en því fylgir jafnframt ábyrgð.

Ég tel að með því að vera opin fyrir nýjungum og með trú á einstaklingum og frumkvæði getum við aukið atvinnutækifæri og bætt samfélagið okkar til framtíðar.

Ég óska eftir stuðningi ykkar í komandi prófkjöri sem fer fram þann 26. mars 2022.“

  • Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú þrjá bæjarfulltrúa – Gunnar Gíslason, og Eva Hrund Einarsdóttir, sem skipuðu tvö efstu sæti listans 2018 verða hvorugt í kjöri í vor en þriðji bæjarfulltrúi flokksins, Þórhallur Jónsson, gefur kost á sér áfram – ekki þó í oddvitasætið. Sjálfstæðsmenn hafa ákveðið að halda prófkjör um efstu fjögur sætin.