Fara í efni
Fréttir

Þór stóðst stærsta prófið og sendi KA niður

Þórsarar fagna mikilvægum sigri í dag - leikmenn, þjálfarateymi, stjórnarmenn og stuðningsmenn. Mynd: Ármann Hinrik

Nú hafa orðið umskipti í fótboltanum á Akureyri. Árið 2027 verður Þór fulltrúi bæjarins í Bestu deild karla á meðan KA þarf að sætta sig við að spila í 1. deild í fyrsta skipti frá árinu 2016.

Þetta varð niðurstaðan í lokaumferð deildarinnar í dag þar sem Þór vann FH á útivelli, 2-1, á meðan KA vann heimasigur á ÍBV, 5-1. Þór endaði með 30 stig í tíunda sætinu en KA fellur með 29 stig í ellefta sætinu, ásamt ÍBV sem var þegar fallið fyrir leiki dagsins og fékk 22 stig.

Þorri Ingólfsson skoraði bæði mörk Þórs í dag, með tveggja mínútna millibili skömmu eftir að Adolf Daði Birgisson hafði komið FH yfir strax á 8. mínútu. Þór heldur því velli en liðið lék í ár í fyrsta skipti í efstu deild frá árinu 2014.

Þórsarar stóðust í dag stærsta prófið á leið sinni að áframhaldandi dvöl meðal þeirra bestu. Þeir voru með örlögin í sínum höndum, þurftu að sigra FH í Kaplakrika til þess að halda tíunda sætinu og senda erkifjendurna í KA niður. Þegar til kom var leikið á Þróttarvellinum í Laugardal en ekki í Hafnarfirði þar sem grasvöllurinn í Krikanum var frosinn eftir nóttina og metinn óleikhæfur.

Seinna mark Þórs – sigurmarkið. Bjarni Guðjón Brynjólfsson átti hörkuskot í stöng og Þorri fylgdi á eftir og skoraði af stuttu færi. Hér hleypur hann fagnandi frá marki ásamt Christian „Greko“ Jakobsen (25). Myndir: Ármann Hinrik

Leikurinn á „heimavöll“ Þórs

Ljóst er að færsla leiksins úr Kaplakrika yfir á Þróttarvöllinn í Laugardal var Þórsurum hagstæð. Að sjálfsögðu hefðu norðanmenn verið háværir og látið til sín taka í stúkunni í Krikanum en óhætt er að segja að þeir hafi gjörsamlega lagt undir sig Þróttarstúkuna. Lítið sást eða heyrðist til stuðningsmanna FH meðal tæplega 900 áhorfenda sem mættu á völlinn í sannkallaðri haustblíðu, sól, logni og hitastigi rétt yfir frostmarkinu.

Ekki skemmdi fyrir Þórsurum að á þessum velli, Þróttarvellinum, fögnuðu þeir sigri í hreinum úrslitaleik gegn Þrótti í lokaumferð 1. deildar fyrir ári síðan, í lokaumferð Íslandsmótsins 2025. Þeir voru því næstum því á heimavelli!

Spiluðu sinn leik til enda

Þessi úrslitaleikur spilaðist eins og Þórsarar vildu, að undanskildu því að mark FH á 8 mínútu var ekki á vinnuplani Sigurðar Heiðars Höskuldssonar þjálfara. En við því var brugðist á besta mögulega hátt og eftir að Þórsarar höfðu náð forystunni var ljóst að þeir ætluðu ekki að láta hana af hendi. Það gerðu þeir ekki með því að pakka í vörn, enda er slíkt ekki vænlegt til árangurs þegar 70 mínútur eru eftir. Þeir spiluðu áfram sinn leik, beittu löngum sendingum til að komast eldsnöggt á bak við FH-vörnina, nokkrar þeirra bestu átti markvörðurinn sparkvissi, Aron Birkir Stefánsson, og síðan voru þeir óhræddir við að pressa FH-ingana.

Líka á síðustu 20 mínútum leiksins þegar Þórsarar sóttu oft djarft og voru nokkrum sinnum nærri því að bæta við marki eða mörkum. Til marks um áræðnina komust FH-ingar, marki undir, varla yfir miðju á lokakaflanum.

Áhorfendur voru 867 og Þórsarar í miklum meirihluta. „Það hefði verið eftirsjá að þessum mögnuðu stuðningsmönnum úr Bestu deildinni,“ segir Víðir Sigurðsson í umfjöllun sinni um leikinn. Mynd: Ármann Hinrik 

Fimm sigrar í sjö leikjum

Þegar flautað var af braust út gríðarlegur fögnuður þar sem mörg hundruð stuðningsmenn Þórs sungu og trölluðu með leikmönnum liðsins í góða stund. Engum lá á að forða sér í skjól í haustblíðunni í Laugardalnum, nema hvað leikmenn Þórs máttu ekki vera alltof seint á ferðinni til að ná fluginu aftur norður. Þar sem eflaust hefur verið haldið áfram að syngja og tralla í Þorpinu fram á nótt.

Niðurstaðan er sú að Þór á fyrir höndum annað ár í Bestu deildinni. Flestir spáðu liðinu falli í upphafi tímabilsins og það sat á botninum þegar aðeins sjö umferðum var ólokið. Þórsarar, sem þá höfðu unnið fjóra af fyrstu 20 leikjunum, unnu fimm af þessum sjö leikjum og þessi fimmtán stig dugðu nákvæmlega til þess að halda velli. Tæpara gat það ekki staðið, en þeir náðu 30 stigum sem er mikið afrek þegar horft er yfir gang mála á tímabilinu í heild.

Gleðin við völd í Laugardalnum í dag. Mynd: Ármann Hinrik 

Hittu í mark með liðsaukanum

Þórsarar hittu gjörsamlega í mark með þrjá af þeim fimm leikmönnum sem þeir fengu til liðs við sig í júlímánuði. Aron Einar Gunnarsson átti að sjálfsögðu að vera stóra trompið á seinni hluta tímabilsins en þegar hann fór aftur til Katar eftir aðeins einn leik í Þórsbúningnum fundu Þórsarar spænska baráttunaglann Kevin Vazquez, mann með sex ára reynslu af efstu deild Spánar. Hann hefur í raun gert það sem Þórsarar vonuðust til af Aroni.

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og Þorri Ingólfsson hafa einnig reynst Þórsurum ómetanlegir. Gyrðir þétti varnarleik liðsins til muna og hinn 17 ára gamli Þorri var sá liðsauki sem þurfti fyrir sóknarleikinn. En eins og Sigurður Heiðar sagði við undirritaðan eftir leikinn þá hefði ekki verið nóg að fá þennan liðsauka ef þeir sem fyrir voru hefðu ekki tekið vel á móti þeim. Að öðrum kosti hefðu nýju mennirnir ekki aðlagast eins fljótt og vel og raunin varð.

Ágúst Eðvald Hlynsson með boltann í Laugardalnum í dag. Fjær er Bjarni Guðjón Brynjólfsson. Mynd: Ármann Hinrik 

Sama lið þrjá leiki í röð

Sigurður Heiðar stillti upp sama byrjunarliði og í leikjunum gegn ÍBV og Stjörnunni. Enda lítil ástæða til að breyta eftir að hafa náð í sex dýrmæt stig í þessum leikjum, sem komu Þórsliðinu í þessa kjörstöðu fyrir lokaumferðina.

Þrjár breytingar voru þó á hópnum því Sigfús Fannar Gunnarsson, Victor Bertomeu og Birgir Ómar Hlynsson komu í staðinn fyrir Ragnar Óla Ragnarsson, Hermann Helga Rúnarsson og Aron Inga Magnússon.

Af FH-ingum var helst að frétta að Tómas Orri Róbertsson, sem hefur verið í stóru hlutverki á miðjunni hjá Hafnarfjarðarliðinu, var ekki með vegna spjaldasöfnunar. Var sem sagt kominn í vetrarfrí.

Mynd: Ármann Hinrik 

KA komst upp fyrir Þór

Þórsarar voru rétt búnir að skora strax á 5. mínútu. Aron Birkir markvörður var eldfljótur að spyrna frá marki sínu, Ágúst Eðvald var sloppinn inn fyrir vörn FH og lyfti boltanum af löngu færi yfir Jökul í markinu, en í þverslána og út.

Nánast á sömu stundu skoraði Jakob Snær Árnason fyrir KA gegn ÍBV, 1-0, og KA-menn voru þar með komnir upp fyrir Þór.

Adolf Daði Birgisson kom hins vegar FH yfir gegn Þór, 1-0, með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf Gils Gíslasonar frá hægri.

Þar með var staða Akureyrarliðanna gjörsamlega búin að snúast við. KA komið úr fallsætinu á kostnað Þórsara. KA með 29 stig en Þór 27.

Ásbjörn Líndal Arnarsson fékk ágætis skallafæri á 11. mínútu eftir aukaspyrnu Einars Freys Halldórssonar en skallaði framhjá FH-markinu.

Engu munaði að FH kæmist í 2-0 á 14. mínútu þegar Jóhannes Kristinn Bjarnason átti skot í innanverða stöng Þórsmarksins, boltinn rúllaði eftir línunni og framhjá stönginni fjær! Þar voru heilladísirnar með Akureyrarliðinu.

Leikmenn Þórs tolleruðu þjálfara sinn, Sigurð Heiðar Höskuldson, á sama stað og í leik síðustu leiktíðar! Mynd: Ármann Hinrik 

Tvö frá Þorra og eitt frá ÍBV

En í staðinn jöfnuðu Þórsarar á 18. mínútu. Aftur átti Aron Birkir langa sendingu fram völlinn, Sigfús Fannar Gunnarsson og Ágúst Eðvald Hlynsson voru skyndilega tveir einir gegn markverði. Jökull Andrésson varði vel frá Sigfúsi en Þorri Ingólfsson fékk boltann hægra megin í vítateignum og náði að skora úr þröngu færi, 1-1.

Og mínútu síðar jafnaði Heiðmar Þór Magnússon fyrir ÍBV gegn KA fyrir norðan, 1-1. Þórsarar skyndilega komnir aftur úr fallsætinu með 28 stig gegn 27 stigum KA.

Allt ætlaði um koll að keyra mínútu síðar í Laugardalnum, á 20. mínútu, þegar Bjarni Guðjón Brynjólfsson átti hörkuskot í stöng og Þorri fylgdi á eftir og skoraði af stuttu færi, sitt annað mark. Þórsarar komnir í 2-1 og í þá stöðu sem þeir þurftu. Stemningin var þar með orðin gríðarleg í stúkunni á Þróttarvellinum, sem stuðningsmenn Þórs áttu með húð og hári.

Aðeins sló á stemninguna þegar Aron Birkir markvörður settist niður eftir hálftíma leik og þurfti aðhlynningu. Sá leikmaður sem Þórsarar máttu einna síst við því að missa í þessum mikilvæga leik og hann hefur verið tæpur í læri undanfarnar vikur. En hann hélt áfram að vanda.

Var þetta vítaspyrna?

Eftir 32 mínútur fór stúkan heldur betur á flug þegar Þorri féll í vítateignum eftir návígi við varnarmann FH og var æfur yfir því að fá ekki vítaspyrnu. Helgi Mikael dómari var vel staðsettur og veifaði leikinn strax áfram. Eftir skoðun á upptökunni á Sýn var þó ekki annað að sjá en þarna hafi Þórsarar verið snuðaðir um vítaspyrnu.

FH-ingurinn eldfljóti Gils Gíslason komst í hættulegt færi, en þó þröngt, hægra megin í vítateig Þórs á 38. mínútu og reyndi að hamra boltann í hornið fjær en boltinn þeyttist framhjá stönginni og í átt að hornfánanum.

Í kjölfarið settu KA-menn aukna pressu á Þór á ný þegar Mikael Breki Þórðarson kom þeim yfir gegn ÍBV á Akureyri, 2-1. Staðan þar með 30-29, Þór í hag.

Christian Jakobsen átti skemmtilega tilraun til að skora þriðja mark Þórs undir lok fyrri hálfleiks þegar hann vippaði boltanum yfir Jökul markvörð af 20 metra færi en rétt framhjá FH-markinu. Í næstu sókn átti Kristján Flóki Finnbogason skot rétt yfir þverslá Þórsara.

Hallgrímur Mar Steingrímsson kom KA í 3-1 í uppbótartíma fyrri hálfleiks og staða KA því vænleg. Spenna á báða bóga þegar Helgi Mikael flautaði til leikhlés á Þróttarvellinum. Þórsarar uppi á þeim tímapunkti en tæpara gat það ekki staðið. Rafmögnuð stemningin í Þróttarstúkunni leyndi sér ekki.

Þrír komu við sögu í dag, þrír ekki. Frá vinstri: Ragnar Óli Ragnarsson, Sigfús Fannar Gunnarsson, Aron Ingi Magnússon, Vilhelm Ottó Biering Ottósson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Kristófer Kristjánsson. Mynd: Ármann Hinrik 

Fleiri færi Þórsara

Oliver Stefánsson miðvörður FH átti fyrsta færi seinni hálfleiks á 58. mínútu þegar hann skallaði í þverslána og yfir eftir hornspyrnu Kjartans Kára. FH sótti mun meira til að byrja með í seinni hálfleiknum en Þórsarar héldu þeim vel í skefjum, staðráðnir i að halda sínum hlut og sækja hratt þegar færi gæfust.

Hallgrímur Mar kom KA í 4-1 um svipað leyti og þar með var nokkuð ljóst að Eyjamenn myndu ekki hjálpa Þór ef í harðbakkann slægi. Þeir yrðu að afgreiða sín mál sjálfir.

Þorri var áfram ágengasti Þórsarinn og hann átti gott skot rétt framhjá markinu á 67. mínútu, enn eftir að Þórsarar komust í skyndisókn eftir langa og nákvæma spyrnu Arons markvarðar fram völlinn.

Ágúst Eðvald átti síðan hættulegt skot frá vítateig á 71. mínútu eftir hornspyrnu en Jökull varði nokkuð örugglega. Sverrir Páll Ingason vinstri bakvörður Þórs fékk gula spjaldið fyrir brot rétt á eftir.

Einar Freyr komst í dauðafæri á 76 mínútu eftir hraða sókn og sendingu Þorra en Jökull í marki FH varði mjög vel frá honum.

Síðan varð allt vitlaust á sömu mínútu þegar Þorri féll öðru sinni í vítateig FH og aftur veifaði Helgi Mikael leikinn áfram.

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson kom til lárs að lani frá KR um mitt sumar og reyndist gríðarlegur liðsstyrkur. Mynd: Ármann Hinrik.

Leikmenn áminntu áhorfendur

Í kjölfarið köstuðu stuðningsmenn Þórs dósum og flöskum inn á völlinn. Leikurinn var stöðvaður og leikmenn Þórs sendu sínum mönnum í stúkunni áminningarorð um að skemma ekki fyrir liðinu með slíkri framkomu. Vel gert hjá þeim.

Arnór Borg Guðjohnsen skallaði yfir mark Þórs á 81. mínútu og taugar Þórsara voru því þandar til hins ítrasta. KA var komið í 5-1 gegn ÍBV og mikilvægustu tíu mínútur tímabilsins eftir. FH sótti, Þórsarar börðust með kjafti og klóm og hikuðu ekki við að pressa FH-inga framarlega við öll tækifæri. Ágúst Eðvald átti góða rispu og skaut rétt utan vítateigs en beint á Jökul.

Ísak Óli Ólafsson fyrirliði FH dansaði heldur betur á línunni þegar hann braut á Sigfúsi Fannari sem var að sleppa í gegnum miðja FH-vörnina. Gult spjald var niðurstaðan en óhætt að segja að það hafi verið appelsínugult.

Ágúst Eðvald Hlynsson og Fannar Daði Malmquist réðu sér ekki fyrir kæti eins og nærri má geta, eftir að flautar var til leikskoka. Mynd: Ármann Hinrik 

Sannfærandi á lokamínútunum

Fannar Daði fékk dauðafæri til að innsigla sigurinn á 87. mínútu þegar hann renndi sér á boltann á markteig eftir sprett og fyrirgjöf Sigfúsar Gunnars frá hægri en Jökull gerði vel að verja. Einhverjir Þórsarar supu hveljur þegar Aron Birkir greip „fallhlífarbolta“ við þverslá Þórsmarksins andartökum síðar en hann var með allt á hreinu.

Þórsarar héldu uppi skothríð á 90. mínútu þegar Jökull varði vel frá bæði Einari Frey og Fannari Daða. Þriðja mark þeirra lá í loftinu og þeir hikuðu ekki við að sækja þó staðan væri þessi. Segir sitt um dugnað og þor sem hefur einkennt Þórsliðið, sérstaklega seinni hluta tímabilsins. Norðanmenn hleyptu Hafnfirðingum varla yfir miðju á lokamínútunum og til að kóróna allt fékk FH-ingurinn Oliver Stefánsson rauða spjaldið i uppbótartímanum.

Þegar Helgi Mikael flautaði til leiksloka braut út gríðarleg gleði meðal Þórsaranna í stúkunni, í mjög svipuðum dúr og á þessum sama velli fyrir ári síðan þegar þeir tryggðu sér Bestudeildarsætið. Fyrir Þórsara var þetta eins skemmtilegur endir á erfiðu tímabili og hugsast gat.

Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Sverrir Páll Ingason (Sigfús Fannar Gunnarsson 81.), Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Kristófer Kristinsson (Birgir Ómar Hlynsson 63.) – Kevin Vasquez, Einar Freyr Halldórsson (Atli Sigurjónsson 90.), Bjarni Guðjón Brynjólfsson – Ágúst Eðvald Hlynsson, Christian Jakobsen, Þorri Ingólfsson (Fannar Daði Malmquist Gíslason 78.)

Áhorfendur voru 867 og Þórsarar í miklum meirihluta. Það hefði verið eftirsjá að þessum mögnuðu stuðningsmönnum úr Bestu deildinni.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í neðri hluta deildarinnar