Bestu mánuðirnir í lífi Þorra markaskorara
Þorri Ingólfsson, sem er nýorðinn 17 ára gamall, var sannkölluð hetja í Þórsliðinu í dag þegar það tryggði sér áframhaldandi sæti í Bestu deild karla í fótbolta með því að sigra FH 2-1 í lokaumferð deildarinnar á Þróttarvellinum í Reykjavík.
Þorri skoraði bæði mörk Þórs í leiknum, með tveggja mínútna millibili á 18. og 20. mínútu, skömmu eftir að FH hafði náð forystunni í leiknum. Þegar upp var staðið voru það þessi mörk sem gulltryggðu að Þór leikur áfram í Bestu deildinni en nágrannarnir í KA þurftu að bíta í það súra epli að falla niður í 1. deild þrátt fyrir 5-1 sigur gegn ÍBV á sama tíma.
Akureyri.net ræddi við Þorra eftir leikinn og spurði hann fyrst hvernig tilfinningin væri að hafa skorað þessi mikilvægu mörk.
„Ég er búinn að segja „geðveikt“ svo oft, eigum við ekki bara að segja að þetta hafi verið frábært? Þetta er sturluð tilfinning og eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ svaraði Þorri brosandi.
Gerðum það sem við erum góðir í
Hvernig var að upplifa þessa byrjun á leiknum, þið lentuð marki undir snemma. Það hefur verið dálítið sjokk, eða hvað?
„Já, en við lentum líka undir á móti Stjörnunni og ég held að allir leikmennirnir hafi haft fulla trú á verkefninu allan tímann. Við vorum bara rólegir, mér fannst við taka stjórn á leiknum og gera það sem við erum góðir í. Við pressuðum þá vel og mér fannst við koma mjög vel inn í leikinn á þessum fyrstu sjö mínútum þó við höfum þá lent undir. Það var góð orka í liðinu og ég myndi segja að við höfum verið óheppnir að fá þetta mark á okkur.
Við vorum sjálfir búnir að fá færi áður en FH skoraði og mér fannst þetta eiginlega vera gegn gangi leiksins.“
Aðalmálið er að þora að skjóta
Síðan svarar þú þessu með tveimur mörkum á tveimur mínútum. Hvernig var það?
„Voru þetta bara tvær mínútur? Það var bara geðveikt – ég meina skemmtilegt! Þetta voru tvö fráköst, þegar Bjarni skaut í stöngina fékk ég boltann eiginlega bara í mig og inn. Var heppinn að vera réttur maður á réttum stað. Fyrra markið var þannig að ég held að markmaðurinn hafi séð boltann seint. Eins og Siggi þjálfari segir, aðalmálið er að þora að skjóta á markið og þá gerist eitthvað.“
Bestu mánuðirnir í lífinu
Þorri kom til Þórs í lok júlí sem lánsmaður frá Víkingi, var þá enn aðeins 16 ára gamall og með þrjá leiki í Bestu deildinni á bakinu. Þann þriðja einmitt gegn Þór á Þórsvellinum 18. júlí, og níu dögum síðar var hann mættur þangað aftur, þá í Þórstreyjunni gegn KA. Hann lék sinn 11. leik með Þór í dag og hefur nú skorað fjögur mörk í Bestu deildinni, öll í síðustu sex leikjunum. En hvert verður framhaldið hjá þessum efnilega sóknarmanni?
„Það sem ég tek út úr þessu ævintýri er að þetta er búið að vera mjög, mjög gaman. Þetta hafa verið bestu mánuðirnir í lífinu. Ég kann ákaflega vel við mig á Akureyri. Framhaldið er bara að fagna í kvöld og síðan skoðum við hvað við gerum. Það kemur bara í ljós.“
Stefni á heilt tímabil í deildinni
Þú ert væntanlega með markmið um að komast lengra og í atvinnumennsku, eins og flestir?
„Já, markmiðið er alltaf að komast út á endanum en það þarf ekkert að vera horfa í það strax. Maður tekur bara eitt skref í einu og við sjáum hvað gerist. Það er klárlega stefnan núna að taka heilt tímabil í Bestu deildinni á næstu ári og þróa sig áfram í þessu.“
Kemur til greina að það tímabil verði á Akureyri?
„Þetta verður að ráðast á næstu tveimur til þremur mánuðum en það hefur verið mjög gaman að vera á Akureyri síðustu mánuðina. Ef ég sé ekki fram á að fá mikinn spiltíma hjá Víkingi á næsta ári þá er þetta eitthvað sem ég mun klárlega vera til í að skoða,“ sagði Þorri Ingólfsson.