Fara í efni
Fréttir

Stórkostleg stjórn – stóð algjörlega með okkur

Tveir glaðir! Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, og Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari eftir sigurinn í dag. Mynd: Ármann Hinrik

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs kvaðst vera afar stoltur af sínu liði eftir að það lagði FH að velli, 2-1, í lokaumferð Bestu deildar karla á Þróttarvellinum í Reykjavík í dag og tryggði sér með því áframhaldandi sæti meðal þeirra bestu.

Þór endaði í 10. sæti deildarinnar með 30 stig en KA með 29 stig og ÍBV með 22 stig féllu niður í 1. deildina.

„Þetta var mjög góð frammistaða og góður leikur. Þvílíkt hjarta í þessu hjá okkar liði. FH-ingarnir bönkuðu á okkur og við bönkuðum á þá en við hefðum getað klárað þetta alveg með því að nýta einhver af þessum fjórum til fimm dauðafærum sem við fengum til að skora.

Það er búið að dæma okkur niður í marga mánuði en við héldum okkar, trúðum því að við gætum haldið okkur uppi, og svo fengum við menn í glugganum í sumar sem eru búnir að standa sig frábærlega. Teymið stóð saman og þessi stórkostlega stjórn hjá Þór stóð algjörlega með okkur og gaf okkur kraftinn sem þurfti til þess að koma til baka. Við erum búnir að vera frábærir seinni hluta mótsins,“ sagði Sigurður Heiðar við akureyri.net eftir leikinn, þegar mestu fagnaðarlæti stuðningsfólks Þórs voru yfirstaðin.

Tóku vel á móti nýju mönnunum

Staðan var ekkert sérstök þegar þið sátuð á botninum og sjö umferðir eftir.

„Ég er stoltur af þessum strákum sem trúðu alltaf á verkefnið og stóðu saman, tóku vel á móti þeim sem komu nýir til okkar í glugganum, þannig að þeir blönduðust vel inn í dæmið hjá okkur. Það var grundvöllurinn fyrir því að nýju mennirnir gætu breytt hlutunum, að þeir sem fyrir voru tækju vel á móti þeim.

Við vorum neðstir þegar sjö umferðir voru eftir vegna þess að fyrri hlutinn af mótinu var svo dapur hjá okkur. En við vorum á leiðinni, fundum að við værum á siglingu, og vorum staðráðnir í að klára þessa úrslitakeppni. Við vissum að ef við ynnum síðustu þrjá leikina, eftir tapið gegn KA, að við myndum halda okkur uppi og það gekk eftir. Við unnum þessa þrjá leiki í röð og það getur enginn tekið af okkur.“

Af þeim sem komu í sumar hafa Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Kevin Vazquez og Þorri Ingólfsson verið í stórum hlutverkum á þessum endaspretti. Hvað kom hver og einn þeirra með að borðinu?

„Gyrðir gaf okkur gríðarlega mikinn líkamlegan styrk, hann er fljótur og mikill keppnismaður, frá honum kemur rosalega mikil jákvæð orka. Hann er ótrúlega duglegur og fylginn sér og frábær varnarmaður, sem getur spilað nokkrar stöður á vellinum.“

Þvílíkur stríðsmaður

„Kevin er þvílíkur stríðsmaður og kom með þessa ótrúlegu reynslu. Hann er alltaf mættur fyrstur á æfingu, skælbrosandi, og er ótrúlegasta fyrirmynd af fótboltamanni sem ég hef kynnst.

Þorri hefur verið stórkostlegur síðustu vikurnar og hefur svo sannarlega reynst okkur vel. Það sást best í dag með mörkunum gegn FH hversu mikilvægur hann er fyrir okkur.“

Haldið þið öllum ykkar mönnum, er ekki hætta á að eitthvað af ungu strákunum fari erlendis?

„Ja, ef umboðsmaðurinn getur ekki selt þessa fjóra stráka úr landi í haust þá þarf hann að fara að finna sér einhverja aðra vinnu!“

Þið þurfið þá að styrkja ykkur eitthvað fyrir næsta tímabil?

„Já, já, við gerum það og munum mæta til leiks með geggjað lið á næsta keppnistímabili,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson.