Fara í efni
Fréttir

Svalur og Valur eru skyldulesning fyrir alla

AF BÓKUM – 79

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Reynir Elías Einarsson_ _ _

„Gætið ykkar! Nú byrjar gamanið, en það verður hættulegt“
 

Fáar teiknimyndasögur eiga jafn sterkan sess í hjörtum Íslendinga og ævintýri Svals og Vals. Síðustu ár hefur Jean Posocco og Froskur útgáfa blásið nýju lífi í seríuna hér á landi og fær miklar þakkir fyrir. Sérstakt fagnaðarefni er að nú eru bækurnar gefnar út í réttri númeraröð. Þetta er kærkomin breyting fyrir þau okkar sem munum eftir útgáfu Iðunnar, þar sem númeraröðin var vægast sagt tilviljanakennd og ruglingsleg og oft var vísað í einhverjar óútkomnar fyrri bækur sem jafnvel komu aldrei út á íslensku.

Froskur hefur verið duglegur að koma nýjasta efninu út og hefur hann nú gefið út bækurnar í seríunni frá númer 54 til 60. Af þessum nýrri bókum fannst mér Hefnd Gormsins, sem kom út árið 2016, sérstaklega skemmtileg og í raun stórviðburður í sögu bókanna þar sem hinn ástsæli Gormur snýr loksins aftur í hópinn eftir áratuga fjarveru. Ástæðan fjarverunnar er sú að þegar André Franquin hætti að teikna sögurnar tók hann höfundarréttinn á Gormdýrinu með sér. Það var ekki fyrr en nýlega að Gormur mátti snúa aftur til vina sinna. Nýju bækurnar sýna að Svalur og Valur eiga enn mikið inni og nýir höfundar eru óhræddir við að takast á við áskoranir og feta jafnvel ótroðnar slóðir.

Samhliða nýja efninu hefur Froskur gefið út eldri bækur Franquin, mannsins sem mótaði persónurnar. Fyrir jólin í fyrra kom út bókin Gormsránið, klassísk saga eftir Franquin sem einkennist af æsispennandi eltingaleikjum og þeim einstaka húmor sem gerði seríuna ódauðlega.

Með því að gefa út bæði nýjustu sögurnar og þær elstu samhliða mun Froskur, með sama áframhaldi, vonandi ná að sýna okkur heildarmyndina. Hvort sem þú vilt sjá Gormdýrið í nýjum ævintýrum eða upplifa nostalgíuna í Gormsráninu, þá eru Svalur og Valur skyldulesning fyrir alla fjölskylduna, og nú loksins í réttri röð!