Fréttir
Ísadóra Nótt – Allt í lagi að vera öðruvísi
02.06.2026 kl. 06:00
AF BÓKUM – 81
Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
Í dag skrifar Eydís Stefanía Kristjánsdóttir_ _ _
Ísadóra Nótt bækurnar eftir Harriet Muncaster
Bækurnar fjalla um stúlku sem heitir Ísadóra og er hálf vampíra og hálfur álfur. Móðir hennar er álfur sem elskar ljós, blóm og töfra, en faðir hennar er vampíra sem kýs næturlíf, leðurblökur og dimma liti. Vegna þess að Ísadóra tilheyrir báðum heimum á hún stundum erfitt með að finna hvar hún passar inn. Hvort ætti hún til dæmis að ganga í álfa skóla eða vampíru skóla? Hvort á hún að sofa á nóttunni eða daginn?
Sögurnar fylgja Ísadóru í ýmsum ævintýrum þar sem hún tekst á við vandamál sem mörg börn geta tengt við, eins og að eignast vini, byrja í skóla eða prófa nýja hluti. Þótt sögurnar séu fullar af töfrum og ævintýrum fjalla þær einnig um mikilvæga hluti eins og sjálfstraust, vináttu og að samþykkja sjálfan sig eins og maður er.
Bækurnar eru skemmtilega myndskreyttar þar sem bleiki liturinn er allsráðandi ásamt glimmeri stjörnum og ýmsum töfrum.
Mér finnst Ísadóra Nótt vera mjög skemmtilegur bókaflokkur. Persónurnar eru áhugaverðar og auðvelt er að fylgjast með söguþræðinum. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt hvernig Ísadóra reynir að sameina það besta úr heimi vampíra og álfa. Boðskapur bókanna er einnig góður því þær minna lesendur á að það er allt í lagi að vera öðruvísi og að styrkleikar okkar felast oft í því sem gerir okkur einstök.
Bækurnar um Ísadóru Nótt henti vel fyrir yngri lesendur sem hafa gaman af töfra sögum og ævintýrum. Þær eru bæði skemmtilegar og lærdómsríkar og skilja eftir jákvæða tilfinningu hjá lesandanum. Ég myndi því hiklaust mæla með þessum bókaflokki fyrir börn sem vilja lesa spennandi og hugljúfar sögur. Ég hef verið að lesa þær fyrir dóttur mín fyrir svefninn og þykir okkur báðum það ótrúlega notalegt og skemmtilegt. Mæli með að eiga notalega stund með börnunum ykkar við lestur.