Fara í efni
Fréttir

„Stóreflir kennslu í heilbrigðisvísindum“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskólaráðherra, og Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, eftir undirritun samkomulagsins í dag. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Stefnt er að því að nýtt færni- og hermisetur við Háskólann á Akureyri taki til starfið haustið 2026. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Eyjólfur Guðmundsson, rektor HA, undirrituðu í dag samkomulag um 200 milljóna króna fjárveitingu til að hefja undirbúning og uppbyggingu húsnæðis fyrir setrið á skólasvæðinu.

Fyrirsögn tilkynningar um undirritunina á vef ráðuneytisins er: Uppbygging færni- og hermiseturs stóreflir kennslu í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri.

Færni- og hermikennsla felst í að herma, með tæknibúnaði eða leiknum sjúklingum, eftir raunverulegum aðstæðum, aðgerðum eða inngripum í öruggu umhverfi. Þetta er gert með leiðbeinanda, án þess að heilsu sjúklings sé stefnt í hættu. Áslaug Arna segir að ein helsta hindrunin í námi í heilbrigðisvísindum hafi verið klíníska námið, þ.e. starfsnámið á sjúkrahúsunum.

„Sú ákvörðun að hefja uppbyggingu fyrir nýtt færni- og hermisetur við Háskólann á Akureyri eru mikil tímamót og forsenda þess að skólinn geti fjölgað nemendum í heilbrigðisvísindum á Íslandi,“ sagði ráðherra í dag.

Forsenda fjölgunar

„Því miður er það svo að sjúkrahúsin hafa hvorki aðstöðu né mannskap til að taka á móti fleiri nemendum í heilbrigðisvísindum. Færni- og hermisetrinu er ætlað að leysa þann vanda og við bindum einnig vonir við að það efli símenntun heilbrigðisstétta og ýti þannig undir innleiðingu nýsköpunar og tækninýjunga í heilbrigðisþjónustu.“

Fjárveitingin styður við markmið skólans um nemendafjölgun og sérstaklega nemendum í hjúkrunarfræði, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Brosa! Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskólaráðherra, og Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, eftir undirritun samkomulagsins í hátíðarsal HA í dag. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þar segir að hið nýja færni- og hermisetur auki gæði og tækifæri til heilbrigðisnáms á landsbyggðinni. Með stækkun á kennsluhúsnæði gefst færi á að taka við fleiri nemendum og aldrei hafa fleiri nemendur stundað staðnám við Háskólann á Akureyri. Að sögn rektors HA mun færni- og hermisetur sem komið er í fulla notkun koma til móts við þá fjölgun sem nú þegar er orðin og gefa möguleika á enn frekari fjölgun nemenda.

Ennfremur segir: „Uppbygging færni- og hermiseturs fellur undir forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og heilbrigðisráðherra lögðu sameiginlega fram til að mæta aukinni mannaflaþörf í heilbrigðiskerfinu og efla heilbrigðismenntun. Í samningi um verkefnið kemur fram að mikilvægt sé að bæði í Reykjavík og á Akureyri sé til staðar grunnbúnaður fyrir færni- og hermikennslu helstu heilbrigðisstétta. Þá er áhersla lögð á árangursríka miðlun þekkingar með nýstárlegum og skilvirkum kennsluaðferðum.

Stefnt er að því að nemendum sem teknir eru inn árlega í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri fjölgi úr 75 í 100 á næstu árum.