Fara í efni
Fréttir

Skýr framtíðarsýn fyrir flugvöllinn nauðsynleg

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir framtíð ferðaþjónustunnar velta á því hvernig haldið verði á spöðunum nú, þegar reisa þarf atvinnugreinina við eftir Covid. 

„Nú er tækifæri til að endurreisa og endurbyggja, horfa á hvað var vel gert og hvað má endurskipuleggja en eitt af því er augljóslega innkoma erlendra ferðamanna inn í landið. Ljóst er að ef mögulegt á að vera að ná markmiðum Íslands um að verða sjálfbært ferðaþjónustuland þar sem fyrirtæki hafa tækifæri til að blómstra um allt land, skila tekjum og bættri þjónustu við íbúa þarf að setja kraft í að markaðssetja Akureyrarflugvöll sem nýtt hlið inn í landið,“ segir Arnheiður í grein sem birtist á Akureyri.net í morgun. 

Hún segir frábær skref hafa verið tekin með fjármögnum nýrrar flugstöðvar og flughlaðs auk uppsetningar nýs aðflugsbúnaðar og því verði hægt að bjóða ferþegum með beini flugi til Norðurlands viðunandi þjónustu. „Áherslan á markaðssetningu þarf hins vegar að koma frá stjórnvöldum og setja þarf skýra framtíðarsýn fyrir Akureyrarflugvöll. Með vilja og fjármagn að vopni er hægt að ná góðum árangri við að fjölga aðilum sem setja upp beint flug norður og þannig gjörbreyta landslagi ferðaþjónustunnar á Íslandi,“ segir Arnheiður.

Grein Arnheiðar