Fréttir
Skógardagurinn í Kjarnaskógi í dag
02.08.2026 kl. 06:00
Sveppafræðsla Guðríðar Gyðu vekjur jafnan mikla athygli á Skógardeginum. Þessi ungi maður var mjög áhugasamur um sveppina í fyrra. Mynd: Hilmar Friðjónsson
Árlegur Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga er haldinn í dag, frá klukkan 13:00 til 16.00. Þessi vinsæla hátíð er vitaskuld í Kjarnaskógi, fjölmargir leggja ætíð leið sína þangað og í tilkynningu er vakin athygli á að takmarkaður fjöldi bílastæða sé í skóginum og mælt með að fólk nýti sér strætó – leið nr. 1930, sem er sérstaklega hugsuð fyrir viðburðinn.
„Skógardagurinn er einn af vinsælustu fjölskylduviðburðum helgarinnar og gefur gestum tækifæri til að njóta einnar fallegustu útivistarperlu Akureyrar. Hér mætast náttúra, fræðsla og skemmtun fyrir alla fjölskylduna,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.
Á dagskrá verður meðal annars:
- Á milli kl. 13 og 14. Svenni Þór og Regína Ósk syngja með krökkunum.
- Á milli kl. 13 og 15. Húlladúlla sýnir listir sínar.
- Á milli kl. 14 og 15. Blæja og Bára verða á svæðinu og taka myndir með gestum.
- Bogfimideild Akurs kynnir starfsemi sína og býður gestum að prófa bogfimi.
- Blæja og Bára verða á svæðinu og taka myndir með gestum.
- Ís í boði Ísbúðarinnar.
- Birkibandið spilar fyrir gesti og gangandi.
- Sveppafræðsla með Guðríði Gyðu.
- Popp og kaffi.
- Fornbílasýning Bílaklúbbs Akureyrar á Birkimel.
- Ávextir í boði Nettó.

- Gestir eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka með sér teppi og njóta notalegrar stundar í skóginum.