Fara í efni
Fréttir

Skert þjónusta HSN og bæjarins vegna manneklu

Mynd af vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Akureyri

Vegna álags og skorts á starfsfólki verður ekki hægt að taka inn fleiri nýjar beiðnir vegna heimahjúkrunar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri til 15. ágúst. Þjónusta heimahjúkrunar er að öðru leyti óbreytt. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Þá er greint frá því á vef Akureyrarbæjar að vegna skorts á starfsfólki stuðnings- og heimaþjónustu hjá velferðarsviði sveitarfélagsins þurfti að skerða þá þjónustu í sumar, einkum frá byrjun júlí og fram í ágúst. „Ekki hefur gengið vel að ráða fólk í sumarafleysingar og enn vantar nokkur stöðugildi til að unnt verði að halda uppi fullri þjónustu,“ segir þar.

„Reynt verður eftir fremsta megni að láta alla persónulega þjónustu halda sér en sú þjónusta sem mun falla niður snýr að þrifum og tiltekt inn á heimilum fólks. Haft verður samband við fólk og það látið vita komi til þess að þjónusta falli niður.“