Sextán spreyttu sig á skipulagi Akureyrarvallar
Stefnt er að því að kynna niðurstöðu framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis hans, sem efnt var til í samstarfi Akureyrarbæjar og Arkitektafélags Íslands, þriðjudaginn 26. maí. Þetta kemur fram í frétt á vef Akureyrarbæjar.
Sextán tillögur bárust, en ein tillagan reyndist ógild og komu því 15 tillögur til umfjöllunar hjá dómnefnd. „Tilgangur samkeppninnar var að leita að hönnunarhópi og fá fram raunhæfa tillögu að miðbæjarumhverfi sem væri eftirsóknarvert til búsetu og suðupottur fyrir margvíslega starfsemi í hjarta Akureyarbæjar,“ segir á vef bæjarins.
Ætlunin er að tilkynna niðurstöðu samkeppninnar og afhenda verðlaun við athöfn í Hofi þriðjudaginn 26. maí kl. 17. Fyrstu verðlaun eru sex milljónir króna, þrjár milljónir í önnur verðlaun og ein milljón í þriðju verðlaun.
Í dómnefnd samkeppninnar áttu sæti Borghildur Sölvey Sturludóttir frá Arkitektafélagi Íslands, Fríða Björg Eðvarðsdóttir frá Félagi íslenskra landslagsarkitekta og þau Halla Björk Reynisdóttir, Hlynur Jóhannsson og Sindri Kristjánsson frá Akureyrarbæ. Um samkeppnina og áherslur dómnefndar má meðal annars lesa í tilkynningu Akureyrarbæjar frá 31. janúar.