Lega Krossanesbrautar er til skoðunar
TDK Foil Iceland ehf., sem er dótturfélag TDK Foil Italy SpA, kannar möguleika á umfangsmikilli stækkun álþynnuverksmiðju félagsins í Krossanesi og hafa stjórnendur þess haft samband við Akureyrarbæ vegna möguleika á stærri lóð á svæðinu, eins og akureyri.net greindi frá á föstudaginn. Bærinn hefur tekið erindinu jákvætt og segir formaður skipulagsráðs að í gildandi deiliskipulagi sé gert ráð fyrir hliðrun Krossanesbrautar og að nú verði skoðað hvort stækkun verksmiðjunnar rúmist innan þeirra skipulagsforsenda.
Í erindi TDK Foil Iceland ehf. til bæjarins kemur fram að unnið sé að mati á hagkvæmni þess að stækka verksmiðjuna, þar á meðal með möguleika á að tvöfalda framleiðslugetu hennar. Ný kynslóð framleiðslubúnaðar kalli á stærra húsnæðis en nú er í notkun og núverandi lega Krossanesbrautar takmarki slíka uppbyggingu.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi og formaður skipulagsráðs.
Fagnaðarefni
Sunna Hlín Jóhannesdóttir, formaður ráðsins, segir að línur skýrist væntanlega á næstu vikum varðandi hugsanlega stækkun lóðarinnar í Krossanesi. Skipulagsfulltrúa hafi verið falið að skoða málið nánar.
„Það er alltaf fagnaðarefni þegar fyrirtæki í bænum vilja efla starfsemi sína. Þá hljótum við að vera að gera eitthvað rétt. Innviðir eru til staðar og starfsfólki finnst væntanlega gott að búa hér. TDK eykur sannarlega fjölbreytni atvinnulífsins og hefur byggt upp sérhæfða þekkingu á svæðinu í þessum iðnaði, sem er mikils virði fyrir atvinnulífið á Akureyri og öllu Eyjafjarðarsvæðinu.“

TDK í Krossanesi. Mynd frá haustinu 2024 þegar verksmiðjan var opnuð öðrum en starfsmönnum og verktökum í fyrsta skipti þegar haldinn var fjölskyldudagur starfsfólksins og akureyri.net bauðst að reka inn nefið. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Gert ráð fyrir mögulegri stækkun í skipulagi
Sunna Hlín segir að á sínum tíma hafi deiliskipulagi verið breytt til að skapa forsendur fyrir stækkun verksmiðjunnar og að þar sé gert ráð fyrir hliðrun Krossanesbrautar til vesturs. Því verði nú skoðað gaumgæfilega hvort stækkun verksmiðjunnar rúmist innan þess skipulags.
„Nú þegar er unnið að færslu og breytingum á Krossanesbrautinni vegna uppbyggingar í Holtahverfi og því er þetta kjörið tækifæri til að ráðast í þessar breytingar á legu vegarins. Einnig er mikilvægt að auka umferðaröryggi á svæðinu og bæta aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda, enda er þar að byggjast upp umfangsmikil atvinnustarfsemi. Ég bind að sjálfsögðu miklar vonir við gott samstarf við TDK Foil Iceland og við munum leggja okkur fram um að svara félaginu fljótt og vel, þannig að stjórnendur félagsins geti tekið upplýsta ákvörðun um næstu skref.“
TDK Foil Iceland ehf. er dótturfélag ítalska félagsins TDK Foil Italy SpA.
- Frétt akureyri.net síðasta föstudag:
Íhuga stækkun og tvöföldun framleiðslu
- Umfjöllun akureyri.net um verksmiðju TDK haustið 2024 þegar hún var í fyrsta skipti opnuð öðrum en starfsmönnum og verktökum:
TDK – Hvað er á bak við þessar luktu dyr?

Mynd: Skapti Hallgrímsson