Fara í efni
Fréttir

Sex verða í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Sex gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Þetta kemur fram á vefriti fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, islendingur.is.

Frambjóðendur eru, í stafrófsröð:

  • Heimir Örn Árnason, deildarstjóri
  • Hildur Brynjarsdóttir, þjónustufulltrúi
  • Ketill Sigurður Jóelsson, verkefnastjóri
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir, námsráðgjafi og varabæjarfulltrúi
  • Þórhallur Harðarson, fjármálastjóri og varabæjarfulltrúi
  • Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi

Prófkjörið fer fram laugardaginn 26. mars og kosið verður um fjögur efstu sæti framboðslistans. Þátttaka er heimil öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum í sveitarfélaginu og þeim sem ganga í Sjálfstæðisflokkinn fyrir lok kjörfundar.