Fara í efni
Fréttir

Sannfærandi sigur Vals á KA/Þór í gær

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir var besti leikmaður KA/Þórs gegn Val, skoraði 5 mörk, var með fjölda stoðsendinga og klettur í vörninni. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

KA/Þór fékk margfalda meistara Vals í heimsókn í 4. umferð efstu deildar kvenna í handknattleik í gærkvöld. Valsarar voru sterkari aðilinn í leiknum og höfðu forystuna allan tímann. Lokatölur urðu 35:27 fyrir Val og KA/Þór er því enn án stiga eftir fyrstu fjóra leikina.

Bæði lið hafa byrjað Íslandsmótið illa; KA/Þór hafði tapað fyrstu þremur leikjunum og Valsarar aðeins náð í einn sigur, sem þykir lítið á þeim bæ. Valur byrjaði leikinn betur og skoraði þrjú fyrstu mörkin. Agatha Kjærbæk Djurhuus kom KA/Þór á blað eftir rúmar 4 mínútur og tveimur mínútum síðar var munurinn kominn niður í eitt mark, 4:3. Þá kom góður kafli hjá Valskonum og þær breyttu stöðunni í 10:4. KA/Þór náði að svara fyrir sig og minnka muninn í tvö mörk en Valur skoraði tvö síðustu mörk hálfleiksins og leiddi 17:13 í leikhléi.

Jafnræði framan af seinni hálfleik

Seinni hálfleikur var jafn lengi framan af og Valur hélt þægilegri 3-5 marka forystu. Gestirnir gerðu síðan út um leikinn þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Breyttu stöðunni úr 29:23 í 34:24 á rétt rúmum tveimur mínútum og sigldu öruggum sigri heim, 35:27.

Sem fyrr segir er KA/Þór enn án stiga í deildinni og vermir botninn ásamt HK. Stutt er í næstu þrjú lið þar fyrir ofan, sem hvert um sig hefur náð einum sigri í fyrstu fjórum umferðunum. Eitt þeirra er Grótta, sem KA/Þór heimsækir í næstu umferð, föstudagskvöldið 9. október.

Mörk KA/Þórs: Lenka Ratvajská 6, Agatha Kjærbæk Djurhuus 5, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Joan Rúnadóttir Johannessen 5 (4 víti), Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 2, Lydía Gunnþórsdóttir 1.

Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 5, Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 4.

Mörk Vals: Katla María Magnúsdóttir 8, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 7, Arna Karitas Eiríksdóttir 4, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 4 (4 víti), Elísa Elíasdóttir 4, Auður Ester Gestsdóttir 3, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Laufey Helga Óskarsdóttir 2.

Varin skot: Ísabella Schöbel Björnsdóttir 6, Iðunn Vala St Kristbjörnsdóttir 2.