Akureyrarslagur í Höllinni í kvöld
Seinni Akureyrarslagur vetrarins í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta karla, Olísdeildinni, fer fram í kvöld kl. 18 þegar Þór og KA mætast í Höllinni í 11. umferð mótsins. Enn eru til miðar á leikinn, ótrúlegt en satt, því spennustigið í bænum hefur farið vaxandi undanfarna daga og bókstaflega orðið til þess að hitastigið hefur hækkað um nær 20 gráður á 2-3 sólarhringum - það er komin tveggja stafa hitatala eftir frostakaflann mikla sem næstum kláraði allt heita vatnið í bænum!
Eins og er þá er „montrétturinn“ norðan Glerár, því Þór vann fyrri leik liðanna í KA-heimilinu í september með 35 mörkum gegn 31. Þjálfarar liðanna eru sammála um að þessar viðureignir Akureyrarliðanna séu hápunkturinn á keppnistímabilinu
Þrátt fyrir að Þór hafi unnið fyrri leikinn hefur gengi KA hefur verið öllu betra en Þórs í fyrstu tíu umferðunum. KA hefur unnið sjö leiki og tapað þremur og situr í 3.-4. sæti deildarinnar ásamt Val. Þórsarar hafa hins vegar unnið þrjá leiki og tapað sjö og eru ásamt HK og Stjörnunni í 9.-11. sætinu. Það sem vekur kannski athygli er að KA hefur náð góðum úrslitum gegn liðunum í efri hlutanum en strögglað meira gegn þeim sem eru neðar. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA segir að það sé markmið þeirra að ná stöðugleika en það taki tíma. „Við höfum á köflum í vetur spilað frábæran handbolta. Sýndum okkar styrkleika í sigrum gegn sterkum liðum eins og Val, FH, Aftureldingu og ÍBV,“ segir Andri Snær og bætir við að þeir hafi verið gríðarlega svekktir að tapa í bikarnum gegn Víkingi og verið sjálfum sér verstir í tapleikjunum í deildinni. „Mér finnst við sem lið enn eiga hluti inni og hef trú á mínu liði. Ég er nokkuð sáttur við stöðu okkar í deildinni en við viljum meira, fleiri stig og framhaldið er spennandi. Við vitum hvað við stöndum fyrir,“ segir hann.
Staðan í deildinni aukaatriði í nágrannaslag
Eins og áður sagði hefur uppskera Þórsara verið lakari en nágrannanna fyrri hluta mótsins og auk sigursins gegn KA hefur liðið aðeins náð að vinna HK og Stjörnuna. Þess ber þó að geta að Þórsarar eiga ennþá eftir að spila báða leiki sína gegn Selfyssingum, sem eru langneðstir í deildinni. Leikir Þórs hafa margir hverjir verið æði köflóttir og fyrir mótið sagði Daniel Birkelund þjálfari að helsta markmið vetrarins væri að ná stöðugleika í frammistöðuna. Það vantar herslumuninn upp á það og slæm byrjun í leikjum hefur oft orðið liðinu að falli. Það er erfitt að þurfa að elta og vinna upp forskot og þótt oft hafi munað litlu hefur liðið tapað of mörgum leikjum út af skorti á stöðugleika.
En þegar KA og Þór mætast skiptir engu máli hvað stigataflan segir eða gengi liðanna gegn öðrum liðum. Það verður stál í stál. Daniel Birkelund tekur undir það. „Þessir nágrannaslagir hafa nefnilega tilhneigingu til að lifa sínu eigin lífi,“ segir hann og bætir við að þeir hlakki mikið til leiksins. „Þessir leikir eru alltaf sérstakir og að vissu leyti einn af hápunktum tímabilsins - fyrir alla sem að þeim koma, held ég. Við erum spenntir fyrir því að spila fyrir framan troðfulla stúku og ég held að þetta verði líklega hnífjafn og spennandi hörkuleikur eins og oftast áður,“ segir Daniel Birkelund.
„Þetta eru skemmtilegustu leikirnir að spila,“ segir Andri Snær. „Þórsliðið er afar vel mannað og breiddin mikil. Liðin þekkja hvort annað vel og þetta verður alvöru barátta. Við búumst við hörkuleik og ætlum okkur að sjálfsögðu sigur. Við erum mjög spenntir, hlökkum til að upplifa stemninguna í Höllinni og veit að Akureyringar fjölmenna á völlinn,“ segir hann og bætir við að þeir muni mæta klárir í slaginn og berjast með sínum stuðningsmönnum. „Þetta verður veisla,“ segir Andri Snær Stefánsson.
- Handbolti
Olísdeild karla, 11. umferð
Íþróttahöllin kl. 18
Þór - KA
Bæði félög hafa tilkynnt um „upphitun“ stuðningsmanna fyrir leikinn.
- „Upphitun hefst í kjallaraklúbbi KA kl. 15:30, drykkir og pizzur til sölu. Hvetjum annars alla til að mæta í gulu og taka þátt í stemningunni, áfram KA!“ segir á Facebook síðu KA í morgun.
-
Miðasala var enn í fullum gangi í KA-heimilinu í morgun.
- Þórsarar ætla að hita upp í Höllinni frá kl. 16:00, þar sem m.a. leikur Liverpool og Manchester United verður sýndur á nokkrum skjáum. Matur og drykkir verða til sölu. „Nýja treyjan verður til sölu. Mætum snemma og í rauðu!“ segir á Facebook-síðu Þórs.
-
„Enn eru til miðar og verða þeir seldir við inngang,“ sagði á Facebook síðu Þórs í morgun.